07/12/2022 • Eyjólfur Jóhannsson

Heyrirðu mun á hávaða eða hljóði?

Nýjustu heyrnartólin frá Sony 1000 XM5 hafa slegið í gegn og fá glimrandi dóma úti um allan heim. Eyjólfur Jóhannsson, vörustjóri Sony á Íslandi, veit sínu viti um góðan hljóm enda er hann stofnandi og gítarleikari hljómsveita eins og Tappa Tíkarass og SSSól.

Eyjólfur Jóhannsson, vörustjóri Sony á Íslandi

Eyjólfur er einn af þeim sem þekkir muninn á hávaða eða hljóði, líkt og Stuðmenn sungu hér um árið. Hann hefur sterkar skoðanir á því hvernig hljóð á að berast til hlustanda, eins og vonast er af þeim sem semja lagið. Hann mælir sérstaklega með Sony 1000 XM5 heyrnartólunum við hlustun.

„Þegar tónlistarmenn taka upp og framleiða tónlist, eyða þeir miklum tíma í að ná fram hinum eina sanna tón og þá skiptir miklu máli að hljómtækin sem eru notuð við hlustun skili tónunum réttum og án þess að draga úr tónunum eða búa til aukahljóð. Þetta getur stundum verið veikleiki hjá framleiðendum á hljómtækjum.“

Eyjólfur Jóhannsson

Vörustjóri Sony á Íslandi

Framleiða hljóminn líkt og listamaðurinn ætlast til

Eyjólfur hefur unnið með Sony vörumerkið síðan 2006 og hefur þar af leiðandi fylgst vel með þróun Sony á heyrnartólum á þeim tíma.

„Þegar 1000 X serían frá Sony var kynnt til sögunnar fyrir fimm árum komu að mínu mati í fyrsta skiptið heyrnartól með alvöru hljómgæði í þráðlausum „noise cancel“ heyrnartólum. Síðan fyrsta eintakið kom þá hafa gæðin aukist með hverri kynslóð og Sony víkur aldrei af þeirri leið að framleiða tóninn eins og listamaðurinn ætlast til að sé gert.“

Sony frumsýndi nýjustu kynslóð sína af heyrnartólum, 1000 XM5, á haustmánuðum 2022 sem fengu umsvifalaust frábæra dóma fyrir hljómgæði og hávaðadempun (noise cancel).

„Helsta gagnrýni á heyrnartólin var að fyrri týpa 1000 XM4 var svo fáranlega góð að erfitt var að bæta um betur en tókst samt. Þar sem hátalarar heyrnartólanna eru gerðir úr koltrefjaefni þá er svörunin hraðari í lægri tíðnum og meðhöndlun á hærri styrk betri en nokkru sinni áður. Þetta sannaði fyrir mér að Sony 1000 XM5 skila hljómnum betur en samkeppnisaðilar.“

Eyjó segir að það skipti miklu máli að þrátt fyrir að heyrnartólin notist við „bluetooth“ tækni og séu þráðlaus að sá möguleiki sé samt alltaf fyrir hendi að hægt sé að nota snúru og stinga í samband á hefðbundinn hátt með að nota snúru „Að mínu mati er það besta leiðin til að koma hljóðinu til hlustandans, þó að „bluetooth“ sé þægileg leið þá getur sú tækni ekki borið allar þær upplýsingar sem að snúra gerir.“

Ómissandi fyrir vinnuna og í einkalífinu

Góð heyrnartól eru ómissandi fyrir marga hvort sem það er í einkalífinu eða vinnunni og er Eyjólfur þar ekki undanskilinn.

Sony 1000 XM5 eru framúrskarandi noise cancel heyrnartólSony 1000 XM5 eru framúrskarandi noise cancel heyrnartól

„Í starfi mínu sem vörustjóri þar sem ég ferðast frekar mikið þá finnst mér frábært að geta farið í bíl eða flugvél og stillt á hávaðadempun (noise cancel) og hlustað á uppáhalds tónlistina mína. Sem tónlistarmaður skiptir það mig öllu máli að tækin sem ég nota þar á meðal heyrnartólin gefi mér raunsæja mynd á því hvernig lögin hljóma í raun og veru. Þess vegna finnst mér sturlað að Sony hafi framleitt heyrnartól sem að mínu mati sameina þetta tvennt betur en nokkur önnur,“ segir Eyjólfur.

Bestu lögin til að prófa gæðin

Sum lög eru betri en önnur til að prófa gæði heyrnartóla og tók Eyjólfur saman fimm lög sem eru tilvalin í það verkefni.

1. Beck – Bandaríski tónlistarmaðurinn Beck er endalaus uppspretta hljómgæða

0:00

0:00

2. Joni Mitchell – Alltaf stórkostleg og þessi klassík hljómar alltaf vel

0:00

0:00

3. Cecilia Bartoli – Sú sem heldur uppi heiðri barroksins

0:00

0:00

4. Frank Ocean – Einn vinsælasti tónlistarmaðurinn samtímans með stórkostlega tóna

0:00

0:00

5. Keith Richards – Þú kemst ekki nær Keith heldur en þetta

0:00

0:00

https://images.prismic.io/new-origo/31f3dff3-a449-44ea-8416-2e6ce2711563_EYJO.jpg?auto=compress,format

Höfundur bloggs

Eyjólfur Jóhannsson

Vörustjóri Sony

Deila bloggi