01/02/2021 • Arna Harðardóttir

Smásaga – app fyrir heimahjúkrun

Starfsfólk heilbrigðiskerfisins er ein af grunnstoðum samfélagsins. Störf þeirra snerta okkur öll á mörgum mismunandi stigum lífsins. Heilbirgðisstarfsfólk vinnur undir miklu álagi alla daga og gerðar eru háar kröfur til þeirra í starfi. Meðal annars er krafist mikillar nákvæmni og gæða, ásamt því að þetta starfsólk sinni starfi sínu hratt og einna mikilvægast - með kærleik og natni.

Kröfurnar eru miklar og nánast hægt að segja að þær séu ómögulegar, en samt sjáum við heilbrigðisstarfsfólk uppfylla þær alla daga. Enda hefur þeim, núna á tímum Covid sérstaklega, verið líkt við ofurhetjur.

Innleiðingu Smásögu flýtt í faraldrinum

Með aukinni tækniþekkingu hafa hinar ýmsu stafrænu lausnir verið þróaðar til að aðstoða heilbrigðisstarfsfólk við að uppfylla þessar kröfur. Þegar Covid-19 faraldurinn skall á Ísland jókst þörfin fyrir stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu og þróun á þeim þurfti að gerast hraðar.  

Starfsfólk heimahjúkrunar var hluti af þessum hóp. Þarna voru heilbrigðisstarfsmenn sem sinntu einum af viðkvæmustu hópum samfélagsins. Mikilvægt var að halda starfseminni gangandi og minnka samneiti starfsfólks. Áður en Covid-19 skall á var starfsemi heimahjúkrunar á þann hátt að allir starfsmenn hittust á starfstöð heimahjúkrunar snemma að morgni. Þar voru prentaðar út upplýsingar skjólstæðinga þeirra og þaðan fór hver starfsmaður á þau heimili sem hann sinnti, með útprentaða lýsingu á því sem þurfti að gera á hverjum stað. Í lok dags hittust síðan allir starfsmenn á sinni starfstöð þar sem upplýsingarnar voru færðar í tölvu og vistaðar í sjúkraskrá einstaklings. Þessu vinnuferli þurfti að breyta vegna reglna og viðmiða sem komu til vegna Covid-19. Það var heimahjúkrun Höfuðborgarsvæðisins sem steig fyrsta skrefið við að nota stafrænar lausnir til að uppfylla þessar reglur.

Origo hefur verið framarlega í þróun á heilbrigðislausnum og meðal annars þróað Smásögu app fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Sú þróun var á lokametrunum þegar Covid-19 skall á. Heimahjúkrun Höfuðborgarsvæðisins bað um að innleiðingu á appinu yrði flýtt svo hægt væri að tryggja öryggi allra skjólstæðinga heimahjúkrunar í Covid-19 faraldrinum.

Hægt að taka myndir sem sendast með öruggum hætti strax í sjúkraskrá

Með notkun á Smásögu geta starfsmenn heimahjúkrunar skráð upplýsingar um skjólstæðinga sína í rauntíma í gegnum snjallsíma, og þaðan sendast allar upplýsingar beint í Sögu, sjúkraskrá einstaklings. Með því gátu starfssmenn heimahjúkrunar sleppt því að mæta á sameiginlega starfstöð á morgnanna og farið þá beint til sinna skjólstæðinga, sem var nauðsynlegt í takmörkunum sem voru í gildi vegna Covid-19.

Smásaga sýndi fram á ótal marga aðra kosti þegar notkunin fór af stað. Ferli heimahjúkrunar var áður á þann hátt að starfsfólk prentaði út viðkvæmar upplýsingar úr sjúkrasögu skjólstæðinga og var því með þær upplýsingar á blaði. Mælingar og aðrar upplýsingar úr hverri vitjun voru síðan skráðar á blöðin og ekki skráðar inn í sjúkraskrákerfið fyrr en í lok dags. Þetta gat boðið uppá mikla áhættu á að röng skráning ætti sér stað. Með notkun Smásögu er auðveldara að gera breytingar á hjúkrunarferlinu. Ef einhverjar breytingar eiga sér stað á hjúkrunarferlinu í sjúkraskrákerfinu uppfærist það strax í Smásögu.

Í Smásögu er hægt að taka myndir, t.d. af sári skjólstæðings og sú mynd sendist þá strax í sjúkraskrá þess. Myndin vistast ekki í appið eða snjallsímann. Áður var það á þann hátt að ef starfsmaður þurfti að taka mynd gat hún vistast í síma starfsmanns og þaðan gat hún óvart farið í skýjageymslu hjá erlendum aðilum eða endað í fjölskyldualbúmi.

Hagræðing í rekstri og aukin gæði

Smásaga hefur því aukið gæði og öryggi í starfi starfsfólks heimahjúkrunar til muna. Þar að auki getur Smásaga verið mikil hagræðing í rekstri heimahjúkrunar. Rekstraraðilar heimahjúkrunar geta lækkað kostnað á tölvubúnaði þar sem ekki lengur er þörf á að koma saman í byrjun og lok dags til að skrá inn upplýsingar úr vitjunum. Einnig minnkaði þetta akstur starfsfólks sem hefur jákvæð umhverfisáhrif.

Aukin þróun á heilbrigðistækni er góð og líka nauðsynleg. Kostir þess að endurhugsa það hvernig heilbrigðisþjónusta er veitt og unnin getur aukið gæði og öryggi hennar til muna. Heilbrigðistækni er líka mikilvæg til að auðvelda störf heilbirgðisstarfsfólks og veitir þeim þá aðstoð sem þau þurfa til að uppfylla þær kröfur sem settar eru á störf þeirra.

Smásaga er í þróun fyrir aðra starfsmenn heilbrigðiskerfisins, meðal annars fyrir starfsmenn legudeilda á heilbrigðisstofnunum og fyrir gjafaskráningu lyfja á hjúkrunarheimilum.

Frekari upplýsingar

Ef þú vilt frekari upplýsingar um Smásögu getur þú lesið meira hér:

https://images.prismic.io/new-origo/7b27b858-0c7b-483a-90ca-05701014c350_arna_hardardottir+%282%29.jpg?auto=compress,format

Höfundur blogs

Arna Harðardóttir

Sölu- og markaðsstjóri Heilbrigðislausna

Deila bloggi