23/05/2022 • Kristín Hrefna Halldórsdóttir

Styttum leiðina að jafnlaunavottun með Justly Pay

Justly Pay er hugbúnaðarlausn frá Origo sem auðveldar og styttir leiðina fyrir fyrirtæki að jafnlaunavottun. Lausnin inniheldur grunn skjala sem mæta kröfunum og hægt er að laga að daglegum rekstri fyrirtækja og stofnana.

Kristín Hrefna

Kristín Hrefna Halldórsdóttir, forstöðumaður gæða- og innkaupalausna hjá Origo, segir að við hönnun Justly Pay hafi hönnunarteymið haft það hugfast að gera ferlið sem einfaldast, ódýrast og þægilegast fyrir fyrirtæki. „Það er okkur metnaðarmál að öll fyrirtæki og stofnanir eiga að geta áunnið sér jafnlaunavottun án þess að þurfa að fjárfesta í ráðgjöf utanaðkomandi sérfræðinga sem getur verið kostnaðarsamt.

Þess vegna hönnuðum við Justly Pay sem nokkurs konar uppsetningarforrit sem í daglegu máli er kallað wizard. Kerfið leiðir þig áfram skref fyrir skref, á traustum stoðum gæðastjórnunarferla, inn í framtíð þar sem við búum til betra samfélag með tækninni.“

Styttir leiðina að vottun

Kristín Hrefna segir Justly Pay geta stytt innleiðingarferli jafnlaunakerfis og leiðina að jafnlaunavottun svo um munar. „Það sem við sáum eftir að fyrstu fyrirtækin tóku þau skref að fá jafnlaunavottun, er að það er tímafrekt og erfitt að skrifa skjöl sem mæta kröfum staðalsins en það er mun einfaldara að aðlaga skjöl sem þegar eru til að daglegum rekstri þíns fyrirtækis. Gott dæmi er Orkusalan sem fór í gegnum allt ferlið og fékk vottun á aðeins 4 mánuðum. Það er árangur sem við erum stolt af.“

María Hedman, Kristín Hrefna Halldórsdóttir og Hildur Björk PálsdóttirMaría Hedman, Kristín Hrefna Halldórsdóttir og Hildur Björk Pálsdóttir

Ný áskorun fyrir mannauðsstjóra

Að sögn Kristínar Hrefnu er það alveg ný áskorun fyrir mörg smærri og meðalstór fyrirtæki að í lok árs þurfa öll fyrirtæki með 25–50 manns í starfi að fara í jafnlaunastaðfestingu og öll með 50 eða fleiri í starfi að jafnaði yfir árið að fara í jafnlaunavottun. Oftar en ekki kemur það í hlut mannauðsstjóra að leiða vottunarferlið. Mannauðsstjórinn hefur ekki endilega reynslu af slíkum verkefnum sem eru nátengd gæðastjórnun og að vinna allt frá grunni er bæði flókið og tímafrekt.

Sá trausti grunnur sem Justly Pay byggir á er gæðastjórnunarkerfið CCQ. CCQ er leiðandi kerfi byggt á áralangri reynslu og sérfræðiþekkingu – þekkingu sem segir okkur að verkfærakista gæðastjórnunar geymir réttu tólin til að uppræta launamun kynjanna. Fagrar fyrirætlanir eru eitt, en til að ná settum markmiðum þarf raunhæfa framkvæmdaáætlun, eftirfylgni og skipuleg viðbrögð við frávikum. Þetta er einmitt gæðastjórnun í hnotskurn.“

Réttlátara samfélag er metnaðarmál

„Hjá Origo skiptir það okkur miklu máli að vinna að góðum málum og réttlátara samfélag verður ekki til af sjálfu sér, heldur með ásetningi og markvissri vinnu,“ segir Kristín Hrefna. „Jafnlaunastaðallinn ÍST85:2012 hefur reynst öflugt verkfæri í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. En áður en vottunin er í hendi þurfa fyrirtæki að uppfylla ýmis skilyrði.“

Að sögn Kristínar Hrefnu er Justly Pay heildstæð lausn sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að byggja upp jafnlaunakerfi sem mætir kröfum jafnlaunastaðalsins. Þegar uppsetningarferli Justly Pay er lokið fá fyrirtæki og stofnanir gæðaskjöl sem mæta kröfum staðalsins, vefeyðublað til þess að taka á móti og vinna úr erindum er varða jafnlaunakerfið og úttektaráætlun sem er undirstaða þess að fá og viðhalda vottuðu jafnlaunakerfi.

https://images.prismic.io/new-origo/64997ff7-9621-48c4-a1c6-3f4534b4108c_kristinhrefna.jpg?auto=compress,format&rect=0,0,497,331&w=300&h=200

Höfundur bloggs

Kristín Hrefna Halldórsdóttir

Forstöðuman

Deila bloggi