Vaka

Í Vöku er hægt að sjá yfirlit sjúklinga á deild. Upplýsingar eru unnar upp úr Sögu og kallaðar eru fram lykil upplýsingar um sjúklinginn, aðvaranir og aðkallandi verkefni. Mismunandi er eftir starfsemi hvað birtist á slíku yfirliti og er Vaka sniðin af þörfum hverrar deildar fyrir sig.

Læknir á heilsugæslu
Læknir á heilsugæslu

Aukin yfirsýn

Vaka sýnir m.a.

  • Yfirlit sjúklinga á deild
  • Lykilupplýsingar úr sjúkraskrá
  • Flagganir
  • Aðkallandi verkefni
  • Upplýsingar um meðferðarteymi, ástæðu innlangar og áætlaðan útskriftardag

Betra aðgengi og aukin yfirsýn

Markmiðið með Vöku er að gefa starfsfólki yfirlit á stórum skjá yfir gögn sjúklinga í Sögu. Rétt gögn birtast þá í rauntíma og þannig er aðgengi upplýsinganna betra, yfirsýn eykst og er hægt að sjá yfirvofandi verkefni eða ástand sjúklinga með fljótlegum hætti.

Hægt er að aðlaga framsetningu Vöku að hverri deild.

Læknir að störfum

Margir verkferlar hjá hjúkrunarfræðingum og læknum hafa breyst til hins betra.

Vaka nýtist öllu heilbrigðisstarfsfólki sem sinnir sjúklingum á deildinni. Við aðlöguðum Vöku að starfsemi hverrar deildar. Innleiðingin gekk mjög vel og allir sáu að hér væri á ferðinni afar góð lausn. Á bráðamóttökunni hefur Vaka breytt sjúklingaflæðinu, forgangsflokkun hefur orðið mun markvissari og biðtími hefur styst. Margir verkferlar hjá hjúkrunarfræðingum og læknum hafa breyst til hins betra. Eftir að Vaka var tekin upp hjá legudeildum er mun betra að fá yfirsýn yfir starfsemi deildarinnar, bæði sjúklingalega séð og mönnunarlega vegna þess að allar breytingar á sjúklingaflæði eru á rauntíma.

Hilda Hólm Árnadóttir
Verkefnastjóri rafrænna sjúkraskrákerfa SAK

Þjónusta

Þjónustuborð Heilbrigðislausna

Hér má nálgast upplýsingar um þjónustuver, TeamViewer fjarhjálp og finna nýjustu útgáfuskjöl ásamt handbókum.

Heilbrigðisstarfsfólk ræðir saman

Ráðgjöf

Fá ráðgjöf