Gefðu gamla tækinu aukalíf

Þú getur komið til okkar með gömul tæki og fengið inneign í verslun Origo í staðinn. Við sjáum síðan um að endurnýja, endurvinna eða farga gamla tækinu á umhverfisvænan hátt. 

Plánetan jörð

Komdu með gamla tækið til okkar

Við tökum á móti gamla tækinu og verðmetum það.

Þú gætir fengið inneign til að nota upp í næstu kaup.

Þú gætir átt inneign upp í nýtt!

Það er einfalt að frelsa gamla tækið úr draslskúffunni og gefa því nýjan tilgang. Kíktu með gamla tækið til okkar og við metum ástand þess fyrir þig.  Ef verðmæti felast í gamla tækinu færðu inneign sem hægt er að nota upp í næstu kaup. Ef tækið þitt er verðlaust komum við því í ábyrga endurnýtingu, endurvinnslu eða förgum því á umhverfisvænan hátt. 

Origo starfsfólk

Hvaða tæki má koma með?

Dæmi um tæki sem við tökum á móti eru gamlar fartölvur, farsímar, leikjatölvur, MP3 spilarar, símar, spjaldtölvur og fleira.

Mikilvægt er að koma með gömlu tækin hlaðin, ólæst og að búið sé að afrita mikilvæg gögn þar sem þeim verður eytt úr tækinu. 

Gamall tölvubúnaður

Hvað verður um tækið mitt?

Við reiknum út virði tækisins og endurnýtum í samstarfi við fyrirtækið Foxway. 

Foxway sérhæfir sig í endurvinnslu á tækjum með því að gera við þau, nýta nothæfa hluti í varahluti eða farga því sem ekki er hægt að nýta.

Yfir 90% allra tækja sem Foxway tekur á móti er hægt að endurnýta. Restinni er síðan fargað á umhverfisvænan hátt. 

Öll förgun hjá Foxway er umhverfisvæn og uppfyllir WEEE (Waste Electrical and Electronic Equipment) sem er reglugerð frá Evrópusambandinu og öll meðhöndlun gagna er samkvæmt GDPR (General Data Protection Regulation).

Maður situr út í náttúrunni í fartölvunni

Endurnýjaðu tækin hjá þínu fyrirtæki

Þarftu að endurnýja tæki og búnað hjá þínu fyrirtæki? Við tökum á móti gömlum og notuðum tækjum óháð framleiðendum. Við yfirförum tækin og metum ástand þeirra og þannig gæti þitt fyrirtæki fengið inneign sem síðan nýtist í kaup á nýjum búnaði. 

Þannig komum við í veg fyrir að gömul tæki safni ryki upp í hillu á skrifstofunni eða heima hjá starfsfólki. Fyrirtækið þitt getur þannig dregið úr sóun, stuðlað að endurnýtingu og umhverfisvænni förgun.

Tölvuskjár

Í hvað get ég svo notað inneignina?

Við erum með frábæra verslun í Borgartúni 37 með úrval af vörum frá heimsþekktum vörumerkjum, á borð við Sony, Canon, Lenovo og Bose, sem er hægt að kaupa með inneigninni.  

Kíktu á verslun.origo.is eða í verslun okkar að Borgartúni 37 og skoðaðu úrvalið.

myndskreyting

Reiknivél

Reiknaðu virði tækisins

Það er einfalt að frelsa gamla tækið úr draslskúffunni og gefa því nýjan tilgang. Þú byrjar á að slá inn upplýsingar um tækið og svara nokkrum laufléttum spurningum um ástand þess.

Apple heyrnartól á appelsínugulum bakgrunni

Þú gætir átt inneign!

Það er einfalt að frelsa gamla tækið úr draslskúffunni og gefa nýjan tilgang. Þú byrjar á að slá inn upplýsingar um tækið og svara nokkrum laufléttum spurningum um ástand þess.

Tegund tækis