Origo hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs þriðja ársfjórðungs félagsins fimmtudaginn 1. nóvember næstkomandi.
Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningin fer fram í ráðstefnusal Origo á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 08:30.