01/07/2021

Metall í stafrænni upplifun með Origo

Origo og Metall hafa gengið til samstarfs sem snýr að hönnun á útliti og virkni á stafrænum lausnum. Origo er í mikilli vöruþróun og nýsköpun í hugbúnaðargerð. Má þar nefna heilbrigðistækni, sprotaþróun í ferðalausnum, gæðalausnir, mannauðslausnir, orkulausnir og öryggislausnir.

,,Þetta er spennandi samstarf við Origo ég hef trú á því að þetta muni gagnast báðum fyrirtækjum vel. Við munum aðstoða Origo með útlit og virkni á þeirra stafrænu vörum. Það er ótrúlega áhugavert fyrir okkur að vinna með Origo því þar er svo öflugt og fjölbreytt lausnaframboð - sem reynir á ólíka styrkleika í hönnun og útfærslu, " segir Alli Metall, stofnandi og eigandi stofunnar Metall.
,,Góð hönnun og upplifun viðskiptavina á vörunum okkar skiptir öllu máli og það er frábær liðsauki fyrir okkur að fá hönnuði frá Metal í þetta öfluga samstarf. Við erum strax farin að sjá árangur af vinnunni í hugbúnaðarþróun hjá okkur og fjölbreytt reynsla frá Metall skilar sér vel inn í lausnaframboð hjá Origo," segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og Markaðssviðs Origo.

Alli stofnaði stofuna Metall árið 2011. ,,Fyrstu árin vorum við mikið í hönnun á plötu umslögum fyrir hljómsveitir m.a. Mugison, Valdimar og Jóel Pálsson svo einhverjir séu nefndir. Við höfum síðan einblínt meira á stafræna hönnun á vefum og öppum, bæði fyrir litla sem stóra viðskiptavini á Íslandi, allt frá flugfélagi og matvörukeðju yfir í leikja og startup fyrirtæki. Það er nóg að gerast í þessum geira og breiður hópur viðskiptavina sem leitar til okkar," segir Alli.

Metall er í góðu samstarfi með stofunni Funsize í Austin í Texas sem heitir Funsize sem er með alþjóðlega viðskiptavini á borð við Wholefoods, Dell og Volvo.

Deila frétt