10/08/2022

Skóladagur Origo 13. ágúst

Verið velkomin á Skóladag Origo í verslun okkar í Borgartúni 37, laugardaginn 13. ágúst. Afslættir af Lenovo fartölvum, gefins ís, drykkir og lukkleikur í boði. Lengdur opnunartími og rafgmögnuð stemning!

Skóladagur Origo

Þú getur verið viss um að finna réttu tölvuna sem hentar fyrir námið á Skóladögum í Origo sem eru nú í gangi. Við verðum með sérstakan skóladag í verslun okkar í Borgartúni 37, laugardaginn 13. ágúst. Þar verða sérfræðingar okkar á staðnum að hjálpa námsmönnum að finna réttu fartölvuna fyrir nýtt skólaár.

  • Við ætlum að gleðja viðskiptavini okkar sem koma til okkar í Borgartúnið með ís frá Valdísi, drykki frá Ölgerðinni og orkudrykki frá Red Bull.

  • Lukkuleikur verður í boði fyrir þá sem mæta þar sem hægt er að vinna Bose QC45 heyrnartólin.

  • Lengdur opnunartími í verslun og opið frá kl. 11:00-17:00.

Við tökum alltaf vel á móti viðskiptavinum okkar og finnst gaman að fá þá í hús. Laugardaginn 13. ágúst verður extra góð stemning hjá okkur í verslun þar sem við tökum vel á móti námsmönnum og hjálpum þeim að finna réttu græjurnar fyrir skólaárið.

Deila frétt