Um Origo
Aðstoð
Aðstoð
Leit
Í ljósi frétta á öllum helstu miðlum um yfirvofandi ógn á heimsvísu vegna veikleika í tölvukerfum sem uppgötvaðist á fimmtudaginn vill Origo koma eftirfarandi á framfæri.
Eins og fram hefur komið þá hefur Origo unnið hörðum höndum að greiningu á Log4j veikleikanum í umhverfi Origo til þess að lágmarka möguleg áhrif og koma í veg fyrir mögulegt tjón eins og frekast er unnt í tölvukerfum sem hýst eru og rekin af Origo.
Origo mun upplýsa um stöðu eftir því sem tilefni er til og frekari upplýsingar munu birtast eftir því sem vinnu tæknimanna vindur fram.
Óski viðskiptavinir eftir frekari eða sértækri aðstoð umfram það sem hér hefur komið fram þá er þeim bent á að senda fyrirspurnir á rekstur@origo.is