Það kann að reynast krefjandi verkefni fyrir kerfisstjóra og öryggislausnateymi að tryggja yfirsýn, einfalda og hagræða í þeim fjölda útstöðva sem notendur hafa yfir að ráða og netþjóna sem eru til staðar í fyrirtækjum!
BigFix er er alhliða lausn sem tryggir yfirsýn, öryggi og sjálfvirkni í stýringu útstöðva og þjóna sem keyra á Windows, Linux og MacOS. Lausnin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum en sífellt fleiri fyrirtæki kjósa að nota BigFix.
Á stuttum kynningarfundi mun Bergsteinn Karlsson, hópstjóri í öryggislausnum Origo, kynna helstu kosti BigFix, sem er skalanleg, einföld í innleiðingu og tryggir kostnaðarhagkvæmni.
Bergsteinn er margsigldur í öryggismálum en hann var áður sérfræðingur hjá öryggisfyrirtækinu Syndis og þar áður starfaði hann sem rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.