16/06/2026

Þegar DORA er annars vegar skiptir rétt forgangsröðun öllu máli

Fólk að ræða Dora vegferð

VIÐSKIPTAVINUR

Dora greining Gildi

OKKAR AÐKOMA

Greining · Ráðgjöf · Aðgerðaráætlun

Lífeyrissjóðurinn Gildi hafði unnið markvisst að innleiðingu DORA í um tvö ár þegar ákveðið var að fá óháðan aðila til að framkvæma sjálfstæða gloppugreiningu. Markmiðið var skýrt: Að fá staðfestingu á þeirri vinnu sem þegar hafði verið unnin og tryggja að fókusinn væri á réttum málaflokkum áður en lengra yrði haldið.

DORA-kröfurnar eru mjög krefjandi og víðtækar og þess vegna mikilvægt að leggja áherslu á rétt viðfangsefni.

Skúli Geir Jensson

Forstöðumaður upplýsingatækni hjá Gildi.

Þörfin á óháðu mati

Vegna umfangs og kostnaðar við innleiðingu reglugerðarinnar taldi Gildi mikilvægt að fá sérfræðinga með djúpa þekkingu á málaflokknum til að meta stöðuna með ferskum augum. Það sem skipti mestu máli var að sannreyna hvort eigin greining sjóðsins væri í takt við raunverulegar kröfur og raunverulega áhættu.

Eftir að hafa metið nokkra samstarfsaðila varð Origo fyrir valinu. Að sögn Skúla vógu sérfræðiþekking, samkeppnishæft verð og skýr tímarammi þyngst við valið á samstarfsaðila.

Fagleg greining sem skapaði traust

Samstarfið fólst í ítarlegri yfirferð á stöðu sjóðsins, þar sem rýndir voru ferlar, áhættuþættir og tæknileg viðfangsefni er lúta að rekstraröryggi. Niðurstaðan veitti sjóðnum dýrmæta innsýn og staðfesti að þeir væru á réttri leið.

Vinnan og afurðirnar voru faglegar og ljóst að sérfræðingar Origo voru með yfirgripsmikla þekkingu á þessu flókna verkefni. Við fengum bæði staðfestingu á því sem við teljum okkur vera góð í og því sem skortir á.

Skúli Geir Jensson

Forstöðumaður upplýsingatækni hjá Gildi.

Skýrari mynd af næstu skrefum

Greiningin gaf sjóðnum aukið öryggi í áframhaldandi innleiðingu. Þegar regluverkið er jafn viðamikið og raun ber vitni, skiptir máli fyrir stjórnendur að geta tekið upplýstar ákvarðanir byggðar á gögnum og sérfræðimati.

Fyrir hverja er DORA-gloppugreining gagnleg?

DORA gloppugreining hjálpar fyrirtækjum að skilja stöðu sína, forgangsraða verkefnum og taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref. DORA-reglugerðin miðar að því að styrkja stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðarins og samræma kröfur um öryggi, rekstrarþol og áhættustýringu.

Óháð stöðumat

Viltu fá óháða og skýra mynd af stöðu þinni gagnvart reglugerðinni.

Skýr forgangsröðun

Þarftu að forgangsraða verkefnum og fjárfestingum með skilvirkum hætti.

Minni óvissa

Viltu draga úr óvissu áður en farið er í umfangsmiklar kerfisbreytingar.

Sérfræðiráðgjöf

Leitarðu að hagnýtri ráðgjöf við innleiðingu á flóknu regluverki.

Viltu fá skýra mynd af stöðu starfsemi þinnar gagnvart DORA?

Hjá Origo aðstoðum við fyrirtæki við að greina stöðu sína, forgangsraða næstu skrefum og byggja upp öruggari og skilvirkari rekstur.