05/05/2026

Uppfært þráðlaust net í öllum grunnskólum Reykjavíkur

Reykjavíkurborg uppfærði þráðlaust net í öllum grunnskólum til að mæta auknu álagi frá þúsundum tækja. Origo hannaði og innleiddi lausn sem tryggir stöðuga tengingu og betra flæði í kennslu.

VIÐSKIPTAVINUR

Reykjavík logo

OKKAR AÐKOMA

Mæling - hönnun - lagnavinna - úttekt

Áskoranir stafrænnar grósku

Stafrænar lausnir eru orðnar órjúfanlegur hluti af námi og kennslu í grunnskólum Reykjavíkur. Nemendur nota spjaldtölvur og tölvur við nám, kennarar styðjast við stafrænar lausnir í kennslu, samskiptum og skráningu og annað starfsfólk notar tæknina við fjölbreytt verkefni.

Með tilkomu Stafrænnar grósku fengu allir nemendur í 5.–10. bekk eigið námstæki til afnota — og fjöldi snjalltækja í skólunum jókst gríðarlega. Eins og Reykjavíkurborg orðar það:

„Eftir að snjalltækjum í skólum fjölgaði með tilkomu verkefnisins Stafræn gróska myndaðist aukin þörf fyrir að styrkja netinnviði þar sem óbreytt ástand réð ekki við aukna netnotkun bæði í kennslu og í öðru starfi skólanna.“

Reykjavíkurborg

Í verstu tilfellum náðu kennslustofur ekki sambandi við þráðlausa netið og hraðinn var of lítill til að uppfylla kröfur nútíma kennsluumhverfis. Í kjölfarið var farið í útboð og samstarf Reykjavíkurborgar og Origo hófst árið 2022.

Markviss framkvæmd frá upphafi til enda

Netteymi Origo tók að sér verkefnið og vinna fór fram með markvissum hætti í fjórum meginþáttum:

Verkferlið í fjórum skrefum

1. Mæling

Mælt fyrir u.þ.b. 1.700 þráðlausum sendum í 38 grunnskólum. Niðurstöður skjalfestar og könnun send til notenda.

2 Hönnun

Hannað nýtt Wi-Fi 6 net á grundvelli mælinganna. Hönnun kynnt og samþykkt af verkefnastjórn Reykjavíkurborgar.

3. Lagnavinna

Lagnir lagðar, sendar settir upp, tengdir og stilltir af. Samstarf við Þelamörk rafverktaka um lagnavinnu

4. Úttekt

Nýtt net mælt og staðfest samkvæmt forskrift hönnunar. Niðurstöður kynntar til samþykktar. Könnun send til notenda í eftirfylgni.

Verkefnið fól einnig í sér náið samstarf við Þelamörk rafverktaka sem sáu um lagnavinnu. Auk þess voru þráðlausir sendar skráðir í stjórn- og eignaskráningarkerfi borgarinnar til að auðvelda rekstur og eftirlit í framtíðinni.

Verkefnið var spennandi og krefjandi. Sérfræðingar Origo unnu ötullega við að skila af sér vönduðu verki. Skólarnir eru margir, oft dreifðir í fleiri stórar byggingar, sem jafnframt eru mikið uppskiptar í kennslustofur, sali og önnur rými. Samstarfið við Reykjavíkurborg gekk einkar vel og ánægjulegt að vinna með svo faglegu teymi að markmiðum verkefnisins.

Björn Önundur Arnarsson

Tæknistjóri rekstrarþjónustu hjá Origo

Niðurstöður í tölum

38

Grunnskólar

~1.700

Wi-Fi sendar settir upp

Wi-Fi 6

Netstaðallinn

2022

Hófst verkefnið

Raunverulegur ávinningur

Með nýuppsettu Wi-Fi netkerfi hafa grunnskólar Reykjavíkurborgar nú aðgang að stöðugra, hraðara og öruggara þráðlausu neti. Nemendur og kennarar geta treyst á að stafrænar lausnir virki áreiðanlega — minni biðtími, færri tengingarvandamál og betra flæði í kennslu og námi. Tæknin er nú enn eðlilegri hluti af daglegu skólastarfi og styður betur við kennslu, samvinnu og stafrænt nám.

Mjög spennandi og viðamikið verkefni þar sem netinnviðir voru styrktir í 38 grunnskólum. Samstarf við Origo var ánægjulegt og má sérstaklega nefna Ómar Haraldsson sem annaðist skipulag og utanumhald verkefnisins, frá undirbúningi til eftirfylgni, af einstakri fagmennsku.

Ragnheiður Þórdís Gylfadóttir

Verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg

Er netið að halda aftur af rekstrinum?

Við greinum stöðuna og sýnum þér leiðina áfram.

Fáðu ókeypis ráðgjöf frá sérfræðingum Origo