12/03/2026
Frá biðröð í 100% sjálfvirkni; þegar tæknin verður ósýnileg
Með samstarfi Stafræns Íslands og Origo hafa fjölmörg ferli færst úr handavinnu og biðröðum yfir í stafræna þjónustu á Island.is þar sem notandinn er í forgrunni og tæknin vinnur hljóðlega í bakgrunni.

VIÐSKIPTAVINUR

OKKAR AÐKOMA
Greining, sjálfvirknivæðing, forritun, þjónustuhönnun, þróun, samþætting, hönnun, verkefnastýring
Brúin milli stofnana, þjónusta á þínum forsendum
Tími biðraða og flókinna eyðublaða heyrir sögunni til. Í dag er opinber þjónusta að breytast úr völundarhúsi stofnana í eina stafræna gátt þar sem þjónustan er einföld og aðgengileg, einmitt þegar hennar er þörf.
Árið 2025 bárust yfir 576.000 umsóknir í gegnum Island.is, 51% fleiri en árið áður. Stafræn umbreyting Íslands er því ekki lengur framtíðarsýn heldur raunveruleiki sem einfaldar líf okkar á hverjum degi.
En hvernig tókst okkur að gera hið flókna svona einfalt?
Stafrænt Ísland - þegar einföld þjónusta skapar raunverulegt virði
Stafrænt Ísland hefur það að leiðarljósi að færa opinbera þjónustu nær fólki - á einn stað, með notandann í forgrunni. Origo hefur verið virkur samstarfsaðili í þessari vegferð og unnið að því að gera flókin ferli einföld í notkun, án þess að flækjustigið í bakendanum sjáist.
Ávinningurinn talar sínu máli:
Ferli sem áður kröfðust heimsókna og biðtíma eru nú afgreidd stafrænt.
Umsóknarferlar verða sjálfvirkari, gagnsærri og öruggari.
Stofnanir losna við handavinnu og geta einbeitt sér að flóknari málum.
Notendur upplifa meiri fyrirsjáanleika, öryggi og traust.
Þetta eru ekki aðeins tæknilegar umbætur. Þetta eru raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks og skilvirkni hins opinbera.

Krafturinn í samstarfinu; þegar tækni og stjórnsýsla mætast
Þegar samstarf Origo og Stafræns Íslands hófst var markmiðið ekki einfaldlega að færa gömul ferli yfir í rafrænt form. Tækifærið fólst í að endurhanna þjónustu frá grunni.
Umbreytingin kallaði meðal annars á svör við að straumlínulaga gagnaflæði milli stofnana og sjálfvirknivæða afgreiðslu (e. end-to-end) án þess að skerða gagnsæi og öryggi.
Áskoranirnar snerust í mörgum tilfellum síður að tækninni sjálfri og fremur að því að samræma ferla, ábyrgð og sýn - með það að markmiði að þjónustan sé byggð í kringum fólk fremur en kerfi.
Origo hefur reynst traustur samstarfsaðili. Verkefnin hafa gengið vel, með skýru verklagi og góðu samstarfi sem hefur skilað raunverulegum umbótum í þjónustu.
Vésteinn Viðarsson
•
Vörustjóri Stafræns Íslands
Greining fyrst, forritun síðar
Lausnir sem Origo hefur þróað í samstarfi við SÍ byggir á heildrænni nálgun þar sem greining, þjónustuhönnun, þróun og samþætting vinna saman sem ein heild. Við hugsum í vistkerfum, ekki einstaka verkefnum.
Við byrjum alltaf á að skilja virðiskeðjuna áður en fyrsta línan af kóða er skrifuð. Við kortleggjum ferla, greinum hagsmunaaðila, skilgreinum gagnastreymi og rýnum lagalegar og öryggislegar forsendur. Þannig tryggjum við að tæknin vinni í bakgrunni og einfaldleikinn birtist notandanum.
Alexandra Cruz Buenano
•
Teymisstjóri Digital Labs hjá Origo
Bak við hverja stafræna þjónustu er þverfaglegt teymi sem vinnur í nánu samstarfi við Stafrænt Ísland og viðkomandi stofnanir: forritarar, hönnuðir, verkefnastjórar og sérfræðingar í öryggi og ferlum. Með lipru (e. Agile) vinnulagi sköpum við skjótan, mælanlegan ávinning og byggjum ofan á hann með stöðugum umbótum.
Það sem Origo færir að borðinu

Þetta er sérstaða okkar. Við hugsum í vistkerfum, ekki einangruðum verkefnum. Hver umsókn er hluti af stærra samhengi þar sem gagnaskipti, öryggi og notendaupplifun verða að virka sem ein heild.
Bak við lausnirnar standa þverfagleg teymi forritara, hönnuða, þjónustufrðinga og sérfræðinga í arkitektúr og öryggi. Með lipru (e. Agile) vinnulagi þróum við í stuttum lotum, mælum árangur og byggjum ofan á hann.
Traustur tæknigrunnur

Árangurinn - stafrænt virði í vekri
Árangurinn snýst ekki um kerfi - heldur áhrif á daglegt líf og rekstur.
Sakavottorð: Ferli sem áður krafðist heimsóknar er nú stafrænt og í mörgum tilfellum sjálfvirkt.
Eigendaskipti ökutækja: Tugþúsundir afgreiðslna á ári fara í gegnum stafrænt ferli sem sparar tíma fyrir notendur og stofnanir.
Nafnskírteini og vegabréf: Afgreiðsla og afhending verða aðgengilegri, sem dregur úr þörf að taka frí frá vinnu.
Kennsluréttindi á vinnuvél: Umsóknarferli fært úr pappír í stafrænt end-to-end ferli með sjálfvirkri staðfestingu gagna.
Þegar flæði gagna, öryggi og notendaupplifun mynda eina heild verður niðurstaðan þjónusta sem er hraðari, öruggari og skýrari - og nýtir sameiginlega fjármuni betur.
Framtíðarsýn - vegferð sem heldur áfram
Ísland er komið langt í stafrænni opinberri þjónustu, en vegferðinni er ekki lokið. Næstu skref snúast um aukna sjálfvirkni, betri gagnanýtingu, gervigreind og enn öruggara vistkerfi. Origo mun áfram leggja sitt af mörkum með sömu nálgun og hingað til: að tengja saman fólk, hugmyndir og tækni - svo stafrænt virði skili sér í raunverulegum áhrifum fyrir samfélagið.
Viltu umbreyta þínum stafrænu ferlum?
Við höfum sérþekkingu á að umbreyta flóknum verkefnum í notendavænar lausnir
Bókaðu ókeypis ráðgjöf og við skoðum hvernig við getum hjálpað þínu fyrirtæki að taka stafrænt stökk