26/04/2024 • Sigrún Eva Valsdóttir
Að koma skipulagi á innkaupin
UNSPSC flokkunarkerfið hjálpar að einfalda skipulag og eykur yfirsýn yfir innkaupum fyrirtækja.

Að skipuleggja og halda utan um innkaup fyrirtækja getur verið flókið, sér í lagi þar sem innkaup eru afar vítt hugtak sem nær yfir allar þær vörur og þjónustu sem fyrirtækið þarf til þess að halda tannhjólum rekstursins gangandi. En þessar vörur og þjónusta eru ekki ókeypis, og líkt og flest vita þá fylgja reikningar öllum slíkum kaupum.
Það segir sig sjálft að án skipulags geta innkaupin fljótt orðið súpa af vörum og reikningum sem safnast upp á samhengislausan máta. Þetta er hins vegar eitthvað sem hægt er að einfalda með viðeigandi flokkunaraðferðum, en það er einmitt hér sem UNSPSC flokkunarkerfið getur skorist í leikinn.
Hvað er UNSPSC flokkunarkerfið?
UNSPSC stendur fyrir United Nations Standard Products and Services Code, en líkt og nafnið gefur til kynna þá er kerfið í umsjón Sameinuðu þjóðanna og er notað til þess að flokka vörur og þjónustu. Flokkunin á sér stað í fjórum stigum þar sem hvert stig veitir nánari upplýsingar um vöruna, þannig að flokkunin getur verið almenn grunnflokkun yfir í það að ná til sértækra eiginleika vörunnar.
Vara getur til dæmis þannig haft yfirflokkunina Matvæli og drykkir, en ef kafað er dýpra ofan í stig UNSPSC flokkunarinnar má staðsetja vöruna alveg niður í flokkinn Lífræn rauð epli. Svona er hægt að staðsetja allar vörur og þjónustu í ákveðinn UNSPSC flokk, þar sem allt á sinn samastað.

Kostir UNSPSC
Aðal hvati þess að nota UNSPSC flokkunarkerfið er að einfalda skipulag og auka yfirsýn í innkaupum. Með notkun UNSPSC má staðla viðskiptaferla, sem auðveldar samanburð upplýsinga á milli innkaupaaðila og birgja svo um munar. Allar þessar upplýsingar má síðan nota til þess að setja upp ítarlegar greiningar sem aðstoða fyrirtæki við hagræðingu innkaupa framtíðarinnar.

Höfundur bloggs
Sigrún Eva Valsdóttir
Vörueigandi
Deila bloggi