25/06/2025

Forvarnir gegn netárásum: Hverju þarf að huga að áður en farið er í sumarfrí?

Með réttum undirbúningi er hægt að fara í sumarfrí með aukna hugarró. Þótt ekki sé hægt að útiloka alla áhættu, þá er hægt að minnka líkurnar á atvikum verulega og tryggja rétt viðbrögð.

Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að sinna forvörnum gegn netárásum en það berast fréttir reglulega af fyrirtækjum sem hafa orðið fyrir netárás. Í víðfeðma stafræna heiminum leynast margvíslegar hættur sem getur verið erfitt að greina. Netþrjótar beita oft flóknum aðferðum og leggja gildrur sem sérstaklega eru hannaðar til að villa um fyrir okkur. Á augabragði geta verðmæt gögn og upplýsingar ratað í rangar hendur. Þessi raunveruleiki snertir bæði einstaklinga og fyrirtæki.

Netþrjótar fara ekki í sumarfrí

Þegar starfsfólk fer í sumarfrí hægir oft á rekstri margra fyrirtækja. Netþrjótar nýta sér þennan tíma og auka starfsemi sína, vitandi að vöktun og viðbragðstími fyrirtækja kann að vera lengri en venjulega. Réttur undirbúningur og forvarnir geta veitt nauðsynlega hugarró yfir sumarmánuðina. 

Það er mikilvægt að fyrirtæki leggi áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir en þegar varnir bresta þarf viðbragðsáætlun að vera til staðar. Hægt er að horfa á netöryggi fyrirtækja út frá þremur stigum: forvörnum, viðbragði og enduruppbyggingu ef allt fer úrskeiðis. 

  • Forvarnir: Huga þarf að skipulagi, prófunum og ferlum, hugbúnaðarlausnum eða þjónustum sem gera óprúttnum aðilum erfiðara að brjótast inn í gögn eða kerfi.

  • Viðbragð: Ef varnirnar sem eru lýstar hér fyrir ofan bregðast, þá er nauðsynlegt að koma auga á það sem fyrst til þess að lágmarka tjón. 

  • Enduruppbygging: Fyrirtæki eða stofnanir þurfa alltaf að gera ráð fyrir því að forvarnir og viðbragð bregðist. Í þessu tilviki er nauðsynlegt að hafa afrit af gögnum og kerfum og leiðir til þess að koma þeim aftur upp. 

Aukin hugarró með undirbúningi og forvörnum

Áður en farið er í sumarfrí er mikilvægt að staldra við og íhuga eftirfarandi spurningar: 

  • Er búið að æfa viðbragðið og eru fumlaus, traust handtök tilbúin að taka á neyðarástandinu með stuttum fyrirvara? 

  • Eru öll kerfi örugglega í afritun?

  • Er búið að prófa að endurheimta afritin? 

Með réttum undirbúningi er hægt að fara í sumarfrí með aukna hugarró. Þó að ekki sé hægt að útiloka alla áhættu með öllu, þá er hægt að minnka líkurnar á atvikum verulega og tryggja að ef eitthvað fer úrskeiðis sé undirbúningurinn slíkur að hægt sé að bregðast hratt við og á réttan hátt.  

Netöryggi er ekki einskiptisverkefni heldur samfellt ferli sem krefst stöðugrar athygli og uppfærslu. Fjárfesting í forvörnum í dag getur sparað fyrirtækjum gríðarlegt tjón á morgun. 

Vilt þú aukna hugarró?

Við erum sérfræðingar í öruggu upplýsingatækniumhverfi og bjóðum upp á fjölbreyttar öryggislausnir.