27/11/2026
Gervigreind breytir netógnum: Er fyrirtæki þitt tilbúið?

Arnþór Björn Reynisson skrifar
Netógnir þróast hratt og árásaraðilar nýta gervigreind í auknum mæli til að finna veikleika, kortleggja upplýsingakerfi og framkvæma árásir með meiri hraða og sjálfvirkni en áður. Þessi þróun hefur í för með sér nýjar áskoranir fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Hjá Origo fylgjumst við ávallt náið með þróun mála í samstarfi við Syndis. Markmið okkar er að styðja við öryggi og verndun gagna, og tryggja rekstrarsamfellu og viðbragðsgetu viðskiptavina á tímum þar sem ógnarumhverfið þróast hratt.
Netógnir verða hraðari og markvissari
Þegar ógnarumhverfið breytist hratt er mikilvægt að fyrirtæki hafi bæði skýra sýn á stöðuna og raunhæfa áætlun um viðbrögð. Smærri veikleikar sem áður þóttu takmörkuð áhætta geta í dag haft meiri afleiðingar en áður vegna aukinnar sjálfvirkni og nýrra verkfæra árásaraðila. Í sumum tilfellum getur aðgangur að einum notandareikningi eða API-lykli nægt til að opna leið inn í stærri hluta upplýsingakerfis fyrirtækis.
Þess vegna er mikilvægara en áður að skoða öryggi upplýsingatækniumhverfisins í heild sinni fremur en einstök kerfi eða lausnir. Origo veitir fjölbreytta þjónustu sem styður við öryggi og rekstrarsamfellu fyrirtækja. Sú þjónusta tekur meðal annars til vöktunar, afritunar, uppfærslna, eldveggja, aðgangsstýringa og viðbragða við öryggisatvikum.
Til að tryggja sem besta yfirsýn yfir breytt ógnarumhverfi vinnur Origo náið með Syndis að greiningu, ráðgjöf og viðbragðsundirbúningi. Samstarfið sameinar reynslu af rekstri upplýsingatæknikerfa annars vegar og sérhæfða þekkingu á netöryggi hins vegar.
Sex atriði sem við mælum með að fyrirtæki fari yfir núna
1. Aðgangsstýringar
Farið yfir notendareikninga, þjónustuaðganga og API-lykla. Fjarlægið aðganga sem eru ekki lengur í notkun og tryggið að fjölþátta auðkenning (MFA) sé í notkun þar sem henni verður viðkomið.
2. Netöryggi og árásarflötur
Kortleggið hvaða kerfi og þjónustur eru aðgengilegar frá internetinu eða í gegnum samstarfsaðila. Metið hvort draga megi úr utanaðkomandi aðgangi, fjartengingum eða aðgangi frá svæðum þar sem engin rekstrarleg þörf er fyrir hendi.
3. Ytri varnir
Yfirfarið stöðu eldveggja, VPN-lausna og vefgátta. Tryggið að stillingar séu uppfærðar og samræmdar núverandi áhættumati.
4. Afrit og endurheimt
Staðfestið að afrit séu tekin af mikilvægum gögnum, bæði í staðbundnum kerfum og skýjalausnum. Jafn mikilvægt er að sannreyna að hægt sé að endurheimta gögn þegar á reynir.
5. Varnir og uppfærslur
Tryggið að öryggislausnir séu virkar á vinnustöðvum,netþjónum og netbúnaði einnig að kerfi séu uppfærð reglulega. Hraði í viðbrögðum við alvarlegum veikleikum getur skipt sköpum.
6. Vöktun og viðbragðsáætlanir
Fyrirtæki ættu að hafa skýra sýn á óvenjulega virkni í kerfum sínum og skilgreind ferli um hvernig brugðist er við öryggisatvikum. Jafnframt þarf að vera ljóst hver ber ábyrgð á hverju skrefi þegar atvik kemur upp.
Ekki er nóg að hafa áætlanir um endurheimt á stökum þjónustum heldur þarf einnig að liggja fyrir áætlun um hvernig allt umhverfið er endurheimt komi til atviks af þeirri stærðargráðu.
Samstarf Origo og Syndis styrkir öryggi og viðbragðsgetu
Til að mæta síbreytilegu ógnarumhverfi vinnur Origo náið með Syndis á sviði netöryggis. Samstarfið byggir á heildstæðri nálgun þar sem reynsla Origo af rekstri upplýsingakerfa og innviða mætir sérhæfðri netöryggisþekkingu og sólarhringsvöktun Syndis.
Þannig fá viðskiptavinir aðgang að bæði traustum rekstri og sérhæfðri öryggisþjónustu sem hjálpar fyrirtækjum að draga úr áhættu, greina ógnir fyrr og bregðast hraðar við þegar atvik koma upp.
Við erum til staðar fyrir viðskiptavini okkar
Í vaxandi ógnarumhverfi er mikilvægt að fyrirtæki bíði ekki eftir atviki til að fara yfir stöðuna. Markviss yfirferð á aðgangsstýringum, afritum, vörnum, uppfærslum og viðbragðsferlum getur skipt sköpum þegar á reynir.
Sérfræðingar Origo og Syndis eru tilbúnir að fara yfir stöðu fyrirtækja, meta áhættu og ráðleggja um næstu skref til að styrkja öryggi og rekstrarsamfellu.