13/02/2026
Fullt hús á Gögn & tónik: Innsýn í gagnavistkerfi Microsoft
Á dögunum hélt Origo viðburðinn Gögn & tónik þar sem fimm af fremstu gagnasérfræðingum landsins deildu þekkingu og reynslu sinni af gagnavistkerfi Microsoft, þar á meðal Fabric, Foundry og Copilot.

Það var líf og fjör hjá okkur í Origo síðastliðinn fimmtudag þegar við héldum viðburðinn Gögn & tónik. Tilefnið var upphitun fyrir UTmessuna og vettvangur fyrir umræðu um gögn og gervigreind.
Við fengum til okkar fimm af fremstu gagnasérfræðingum landsins sem deildu reynslu sinni af gagnavistkerfi Microsoft. Húsið var fullt af áhugafólki um tækni og gögn, Reykjavík Cocktails sáu um að hrista kokteila fyrir gesti og að erindum loknum sköpuðust fróðlegar umræður á milli gesta.
Vegferð Íslandsbanka í Azure umhverfið

Valþór Druzin Halldórsson, Head of Data hjá Íslandsbanka fór yfir hvernig bankinn hefur byggt upp gagnaumhverfið sitt í Azure og hvaða nálgun hefur skilað þeim mestum árangri. Hjá Íslandsbanka er gagnaverkefnum stýrt í gegnum þverfagleg vöruteymi þar sem greinendur fylgja þróun lausna frá upphafi til að tryggja gæði gagna strax frá byrjun.
Bankinn innleiddi lakehouse arkitektúr í Azure þar sem Azure SQL í hyperscale uppsetningu spilar lykilhlutverk, enda eru gögnin lesin oftar en þau eru skrifuð. Með því að nota event-drifið flæði hefur teyminu tekist að lágmarka bæði flækjustig og kostnað. Þessi nálgun hefur einnig haft bein áhrif á hraða í afhendingu. Samkvæmt Valþóri flækist lítið fyrir teymunum í daglegri vinnu og mögulegt er að þróa, prófa og setja lausnir í rekstur mun hraðar en áður.
Á rúmu ári hefur bankinn náð 82% gagnaþekju í nýja umhverfinu og gera þau ráð fyrir að ná yfir 100% á næstu mánuðum. Til samanburðar nefnir Valþór að það tæki um 17 ár að byggja upp sambærilegt í gamla umhverfinu.
Eru gögnin tilbúin fyrir gervigreind?

Åsne Holtklimpen, Senior Architect - Microsoft AI and Compliance Lead hjá Crayon / Software One fór yfir raunveruleikann á bak við innleiðingu Microsoft 365 Copilot. Hún lagði áherslu á að gervigreind sé ekki töfralausn heldur tól sem krefst undirbúnings, aga og ábyrgðar.
Copilot er aðeins jafn öflugt og gögnin sem það fær að vinna með. Åsne minnti á að ef gögn eru óskipulögð, úrelt eða röng mun gervigreindin einfaldlega skila lélegum niðurstöðum.
Sérstök áhersla var lögð á gagnaöryggi og aðgangsstýringu. Copilot finnur allt sem notandi hefur aðgang að, sem þýðir að ef fyrirtæki eru með lélegt utanumhald á aðgangsheimildum getur gervigreindin dregið upp viðkvæmar upplýsingar sem ættu ekki að vera sýnilegar.
Að lokum lagði hún áherslu á að innleiðing Copilot er ekki eingöngu verkefni upplýsingatæknideilda. Til að árangur náist þurfa stjórnendur að skilja tæknina, móta skýra stefnu og fylgja henni eftir.
Hagræðing í rekstri með Microsoft Fabric

Alejandro Serrano García, Senior Data & Analytics Consultant hjá Origo, sýndi hvernig Microsoft Fabric getur breytt því hvernig fyrirtæki vinna með gögn, ekki með því að bæta við fleiri tólum heldur með því að einfalda heildarmyndina. Í stað þess að gögn séu dreifð um marga staði gerir Fabric kleift að sameina þau í eitt gagnasafn, OneLake, þar sem auðvelt er að vinna með þau.
Alejandro deildi dæmum úr raunverulegum verkefnum Origo þar sem þessi nálgun skilaði skýrum árangri. Með Fabric varð auðveldlega hægt að fá heildstæða yfirsýn yfir gagnainnviði, Power BI skýrslur, notkun, aðgangsstýringar og kostnað svo eitthvað sé nefnt.
Einn mikilvægasti þátturinn í þessari vegferð var að skilja hvað breytingin frá því að fara úr eldra umhverfi yfir í Fabric myndi raunverulega kosta. Þegar lausnirnar voru bornar saman hlið við hlið kom skýrt í ljós að breytingin skilaði Origo umtalsverðum ávinningi.
Vinnslutími gagna styttist úr 35 mínútum niður í 12 mínútur á hvert verkefni.
Vinnslukostnaður lækkaði um allt að 70%.
Geymslukostnaður lækkaði um allt að 99,9% þar sem aðeins er greitt fyrir raunverulega notkun.
Mun færri kerfishlutar þurfa viðhald sem einfaldar rekstur verulega.
Auk þessa varð mun einfaldara að endurnýta lausnir. Lausn sem var byggð einu sinni var hægt að keyra í fleiri umhverfum og jafnvel fyrir viðskiptavini, án þess að endurtaka vinnuna frá grunni.
Þegar grunnurinn var kominn opnuðust einnig ný tækifæri með gervigreind. Með vel uppbyggðum og samræmdum gögnum varð mögulegt að spyrja gagnakerfin beint og styðja við ákvarðanatöku án þess að þurfa að skrifa flóknar fyrirspurnir.
Tækifærin með Power BI MCP Server

Lokaerindi dagsins fluttu þeir Viktor Ari Ásrúnarson og Einar Þór Gunnlaugsson frá Maven. Þeir kynntu Power BI MCP Server, nýja lausn frá Microsoft sem gerir gagnateymum kleift að nota gervigreind til að hanna og stýra Power BI gagnalíkönum.
Í stað þess að nota gervigreind til að leysa fólk af hólmi lögðu þeir áherslu á að nota hana til að skala vinnu sína til að losa fólk undan tímafrekur og handvirkum ferlum.
Í erindinu sýndu þeir hagnýt dæmi.
Í fyrsta lagi hvernig hægt er að búa til töflu sem hýsir alla mælikvarða módelsins út frá lítilli skipun (e. prompt) þar sem gervigreindin setur upp og formattar mælikvarða, bætir við lýsingum og skilar samantekt á því sem gert var.
Í öðru lagi hvernig sjálfvirk tiltekt og frágangur, svo sem breyta töflu heitum, dálka heitum, gagnatýpum og sýnileika dálka, getur sparað fjölda músasmella og dregið úr villuhættu.
Í þriðja lagi hvernig hægt er að búa til uppfærða skjölun beint úr gagnamódelinu svo það verði ekki úrelt um leið og breytingar eru gerðar.
Með þessu nýja verkfæri er ljóst að teymi geta unnið hraðar, minni líkur eru á mannlegum mistökum og að gagnavinnan styðji stöðugt við þarfir rekstursins. Næsta skref að þeirra mati væri að móta skýrar reglubækur og staðal sem gervigreindin vinnur eftir. Með því er hægt að tryggja samræmi í uppbyggingu gagnamódela og gera vinnuna hraðari og endurnýtanlega.
Traustur grunnur skapar forskot
Eftir fjölbreytt og áhugaverð erindi var ljóst að gervigreind skapar aðeins virði þegar hún byggir á traustum og öruggum grunni. Gæði gagna, skýr stefna og rétt verkfæri þurfa að fara saman. Þrátt fyrir ótrúlega möguleika til sjálfvirknivæðingar og vaxtar er gervigreind aldrei sterkari en gögnin sem hún byggir á.
Við viljum þakka fyrirlesurum kærlega fyrir frábær innlegg og öllum þeim gestum sem mættu og tóku þátt í umræðunni.
