30/09/2026
Frá gögnum til betri ákvarðana rætt á Gögn & tónik
Gestir fengu að heyra raunveruleg dæmi úr íslensku atvinnulífi og fengu innsýn í ólíkar hliðar gagna- og gervigreindar.

Það var fullt hús í nýjum höfuðstöðvum okkar á Dalvegi þegar viðburðurinn Gögn & tónik fór fram á dögunum. Gögn og gervigreind voru í aðalhlutverki og sjónum beint að því hvernig íslensk fyrirtæki og stofnanir geta nýtt gögn til að einfalda ferla, sjálfvirknivæða verkefni, bæta ákvarðanatöku og skapa betri upplifun fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Hagnýting gagna og gervigreindar hjá Reykjavíkurborg

Inga Rós Gunnarsdóttir, gagnastýra hjá Reykjavíkurborg, fjallaði um hvernig borgin nálgast hagnýtingu gagna og gervigreindar með það að markmiði að bæta þjónustu við íbúa. Hún lagði áherslu á að gögn væru forsenda árangursríkrar gervigreindar og að raunverulegt virði skapist þegar gögn eru nýtt til að styðja við betri ákvarðanatöku og skilvirkari þjónustu.
Í erindinu var farið yfir mikilvægi ábyrgrar innleiðingar gervigreindar í fjölbreyttri starfsemi borgarinnar, allt frá leik- og grunnskólum til skipulagsmála og velferðarþjónustu. Þar var lögð áhersla á persónuvernd, gagnsæi og öryggi gagna, auk þess sem gervigreind skyldi ávallt þjóna skýru hlutverki í þágu íbúa fremur en að vera innleidd fyrir tækninnar sakir. Dæmi voru sýnd um verkefni þar sem borgin hefur þegar nýtt gervigreind, þar á meðal vefaðstoð, sjálfvirkar samantektir og spálíkön sem styðja við rekstur og þjónustu.
Takk vegferðin

Sindri Freyr Ólafsson, verkefnastjóri Takk, og Pálmi Símonarson, sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Högum, sögðu frá vegferð Takk og hvernig markviss nýting gagna hefur mótað þróun þjónustunnar frá fyrstu hugmyndum til dagsins í dag. Þeir fóru yfir helstu áfanga verkefnisins, lærdóminn sem safnaðist á leiðinni og hvernig gögn hafa gegnt lykilhlutverki við að skilja hegðun notenda og forgangsraða verkefnum.
Í erindinu kom fram að gögn hafi ekki aðeins nýst til að mæla árangur heldur einnig til að móta nýjar áherslur og styðja við stefnumótandi ákvarðanir. Með því að greina notkun og þróun þjónustunnar hafa Hagar aðlagað Takk að þörfum viðskiptavina og byggt upp sterkari grunn fyrir næstu skref í þróun verkefnisins.
Copilot sem þróunaraðili: Hvernig Veritas byggði lykilvöktun í Fabric

Aron Hrafnsson, hugbúnaðarsérfræðingur hjá Veritas, sýndi hvernig Copilot var nýtt sem virkur þátttakandi í hugbúnaðarþróun við uppbyggingu lyfjavöktunarkerfis í Microsoft Fabric. Upphafspunkturinn var flókið og handvirkt ferli þar sem upplýsingar um mögulegan lyfjaskort komu úr mörgum gagnalindum og erfitt var að halda utan um stöðu mála og eftirfylgni.
Með stuðningi Copilot var farið frá hugmynd að ítarlegri skilgreiningu, verkefnaáætlun og innleiðingu lausnarinnar. Niðurstaðan var rekjanlegt vinnuferli þar sem gögn eru sameinuð á einum stað, viðskiptareglur skýrar og yfirsýn yfir stöðu og sögu tilkynninga aðgengileg í sameiginlegu Fabric forriti. Aron lagði áherslu á að hlutverk þróunarteymisins hefði ekki minnkað heldur færst frá handvirkri skráningu kóða yfir í að skilgreina reglurnar, sannreyna niðurstöður og stýra þróunarferlinu.
Íslensk hýsing gervigreindar í Gróttu

Bergur Tareq Tamimi og Ingólfur Ari Jóhannsson, sérfræðingar í gervigreind hjá Origo/Datalab, fjölluðu um Gróttu, íslenska hýsingarlausn fyrir gervigreind. Í erindinu var sjónum beint að því hvernig hægt er að reka og nýta öflugar gervigreindarlausnir með hýsingu innanlands og þannig mæta kröfum um aukið öryggi, gagnavernd og staðsetningu gagna.
Jafnframt var veitt innsýn í tæknilegan grunn lausnarinnar og hvað þarf að vera til staðar „undir húddinu“ til að styðja við nútímaleg gervigreindarumhverfi. Erindið sýndi hvernig íslensk fyrirtæki og stofnanir geta nýtt sér gervigreind á eigin forsendum með öflugri innlendri innviðaþjónustu sem styður bæði nýsköpun og kröfur um ábyrgari meðferð gagna.
Frá gögnum til betri ákvarðana
Sameiginlegi þráðurinn í gegnum dagskrána var hvernig fyrirtæki og stofnanir geta umbreytt gögnum og tæknilegum möguleikum í betri þjónustu, aukna skilvirkni og upplýstari ákvarðanatöku en jafnframt tekist á við þær áskoranir sem fylgja notkun gagna og gervigreindar.
Við þökkum öllum þeim 130 gestum sem skráðu sig á Gögn & tónik og fyrir frábæra stemningu á Dalveginum.
