31/03/2023

Hakkaþon Origo: Yfir 130 starfsmenn þjálfa sig í öruggri hugbúnaðargerð

Árleg öryggisþjálfun hugbúnaðarsérfræðinga hjá Origo var haldin með pompi og prakt. Fræðslan er mikilvægur liður í stafrænu öryggi í hugbúnaðarþróun.

Í gær var haldin árleg öryggisþjálfun hugbúnaðarsérfræðinga hjá Origo. Þessi fræðsla er mikilvægur liður í að tryggja stafrænt öryggi í hugbúnaðarþróun.
María Karlsdóttir er leiðtogi í gæðamálum í hugbúnaðargerð:

„Öryggi er okkur ofarlega í huga í hugbúnaðarþróun hjá Origo. Við erum með skýr markmið um reglulega þekkingaröflun til að bæta stafrænt öryggi. Allir hugbúnaðarsérfræðingar fara á árlegt öryggisnámskeið og ákváðum við að gera hlutina aðeins öðruvísi í ár.“

María Karlsdóttir

Leiðtogi í gæðamálum í hugbúnaðargerð

Í ár er fræðslan verkleg en Syndis, sérfræðingar í stafrænu öryggi, halda hakkaþon með áherslur á OWASP top 10 veikleika. OWASP eru alþjóðleg samtök um netöryggi sem halda úti lista yfir alvarlegustu veikleikana í hugbúnaðarþróun. Í hakkaþoni vinna lítil teymi þétt saman að því að leysa verkefni og keppast að því að vera best í öryggi hjá Origo.

„Sama lögmál gildir um hugbúnaðarþróun og íþróttir hvað varðar sókn og vörn. Ekkert lið getur spilað góða vörn nema að vita hvernig á að spila góða sókn. Þess vegna býður Syndis upp á þjálfun þar sem við setjum forritara í spor hakkarans og kennum þær aðferðir sem beitt er til að ráðast á hugbúnaðarkerfi um allan heim. Slík þjálfun hefur fyrirbyggjandi áhrif, þar sem hún dýpkar skilning forritara á þeim árásum sem kerfi geta orðið fyrir og gerir þeim kleift að hanna öruggari hugbúnað frá grunni.“

Segir Hjalti Magnússon öryggissérfræðingur hjá Syndis sem stýrir þjálfuninni.

The Hackstreet Boys fengu öryggisnáms-skeið í verðlaun

Frá vinstri: Örn Óli Strange, Skúli Freyr Hinriksson, Friðrik Anton Halldórsson og Guðmundur Daníel Jakobsson.Frá vinstri: Örn Óli Strange, Skúli Freyr Hinriksson, Friðrik Anton Halldórsson og Guðmundur Daníel Jakobsson.

Sigurvegarar hakkaþonsins voru The Hackstreet Boys. Liðið skipuðu:Örn Óli Strange, Skúli Freyr Hinriksson, Friðrik Anton Halldórsson og Guðmundur Daníel Jakobsson. Þeir hlutu í verðlaun gull öryggisnáms-skeiðar og 10.000 kr YAY gjafabréf.

Syndis afhenti verðlaunagrip sem eru gull-, silfur- og bronsskeiðar eða námsskeið.Syndis afhenti verðlaunagrip sem eru gull-, silfur- og bronsskeiðar eða námsskeið.

Öryggi er lykilatriði í stefnu Origo

Stafrænt öryggi er samfélagslegt mál sem Origo vill taka þátt í að tryggja. Þekkingaröflun er undirstaða þess að geta skapað öruggar lausnir og unnið í öruggu umhverfi.

Það er stefna Origo að lágmarka upplýsingaöryggisatvik með því að hanna hugbúnaðarþróunarferilinn, frá hugmynd að útgáfu, þannig að öflugar varnið séu byggðar á hverju stigi hans. Með öflugu stjórnkerfi sem byggir á forystu, stuðningi,  innri- og ytri úttektum, áhættumati, skipulagningu, áætlun um samfelldan rekstur og þjónustu, stöðumati og stöðugum umbótum. ISO 27001 vottun er viðurkenning á því góða starfi.

Lestu meira um öryggisstefnu hér

Við óskum þeim hjartanlega til hamingju!