13/11/2026

Körfuboltinn og Copilot: Tölfræðin sem skapar forskot

Origo er stoltur bakhjarl íslensks körfubolta. Í samstarfi við Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) byggjum við upp betri tækni-, gagna- og vefinnviði. Markmiðið er að efla stafræna framþróun í íslenskum körfubolta.

Af því tilefni gerðum við nýjar sjónvarpsauglýsingar. Þær sýna hvernig Microsoft Copilot safnar saman og greinir tölfræði úr leiknum og breytir henni í innsýn sem getur skapað forskot. Tölfræði er hluti af körfuboltanum. Með Copilot nýtist hún enn betur.

Með okkur í liði voru landsliðsfólkið Elvar Már Friðriksson, Hilmar Smári Henningsson, Rebekka Rut Steingrímsdóttir og Tryggvi Snær Hlinason. Við þökkum þeim kærlega fyrir.

0:00

0:00

0:00

0:00

0:00

0:00

Við óskum karla- og kvennalandsliðunum í körfubolta góðs gengis í leikjunum fimm sem bíða þeirra í nóvember.

Áfram Ísland! 🇮🇸