20/02/2026

Ágúst Ingi ráðinn viðskiptastjóri hjá Origo

Ágúst Ingi Sævarsson hefur verið ráðinn viðskiptastjóri hjá Origo en hann mun leiða samstarf við viðskiptavini félagsins.

Ágúst Ingi Sævarsson hefur verið ráðinn viðskiptastjóri hjá Origo.  Í starfinu mun hann leiða samstarf við viðskiptavini félagsins og bera ábyrgð á stefnumótandi verkefnum. 

Sem viðskiptastjóri mun Ágúst leggja sérstaka áherslu á að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini með stefnumótandi ráðgjöf og langtímahugsun í tæknimálum. Fyrirtæki í íslensku atvinnulífi eru sífellt að aðlaga sig að síbreytilegu umhverfi tækninnar. Með langtímastefnumótun í tækni styður Origo við viðskiptavini að ná forskoti og aðstoðar við að byggja traustan rekstur til framtíðar. 

Stafræn þróun kallar á skýra sýn og markvissa forgangsröðun hjá fyrirtækjum í dag. Origo stefnir að því að vera í fremstu röð á Íslandi þegar kemur að lausnum og ráðgjöf á þessu sviði. Ég er spenntur að fá að taka þátt í þeirri vegferð, vinna náið með viðskiptavinum og hjálpa þeim að nýta tæknina til að skapa raunverulegt virði.

Ágúst Ingi Sævarsson

Viðskiptastjóri

Ágúst býr yfir víðtækri reynslu úr sölu, rekstri og viðskiptastýringu og hefur gegnt stjórnunar- og lykilhlutverkum víða úr atvinnulífinu. Hann starfaði síðast sem sölustjóri hjá DTE og áður sem rekstrarstjóri hjá Raftækni. Þá hefur hann verið sölusérfræðingur Business Central hjá Advania, viðskiptastjóri hjá 66°Norður og sölustjóri hjá Símanum. Í þessum störfum hefur hann byggt upp sérfræðiþekkingu í fyrirtækjasölu og markvissri uppbyggingu langtímasamstarfs við viðskiptavini. 

„Ágúst býr yfir öflugri reynslu af stefnumótandi viðskiptastýringu og hefur skýra sýn á hvernig byggja má upp traust og verðmæt langtímasambönd. Sú nálgun fellur vel að áherslum Origo um náið samstarf og skilning á rekstri viðskiptavina. Með ráðningu Ágústs styrkjum við enn frekar getu okkar til að veita framúrskarandi þjónustu,“ segir Helgi Björgvinsson, sölustjóri Origo. 

Deila frétt