28/01/2025

Berglind Una ný forstöðukona Digital Labs hjá Origo

Berglind Una Svavarsdóttir hefur verið ráðin sem forstöðukona Digital Labs. Deildin veitir þjónustu og ráðgjöf á sviði stafrænnar umbreytingar, veflausna, hagnýtingu gagna og gervigreindar.

Origo hefur ráðið Berglindi Unu Svavarsdóttur sem forstöðukonu Digital Labs. Digital Labs deildin veitir þjónustu og ráðgjöf á sviði stafrænnar umbreytingar, veflausna, hagnýtingu gagna og gervigreindar. 

Eftir sjö frábær ár hjá Gangverk geng ég stolt frá borði og tek þakklát við nýju hlutverki sem forstöðukona Digital Labs hjá Origo. Ég er afar spennt að taka þátt í ótal krefjandi og spennandi verkefnum fyrir núverandi og nýja viðskiptavini Origo.

Berglind Una Svavarsdóttir

Forstöðukona Digital Labs

Með ráðningu Berglindar Unu styrkir Origo stöðu sína sem leiðandi afl í stafrænni umbreytingu og nýsköpun á íslenskum markaði. Árni Geir Valgeirsson er framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna. 

Við erum mjög ánægð að fá Berglindi Unu til liðs við okkur í Origo. Hún kemur með mikinn kraft og dýrmæta reynslu af stafrænum umbreytingum og þróun, sem styrkir okkar stefnu í framúrskarandi hugbúnaðargerð. Origo leggur áherslu á snjallar lausnir með jákvæða notendaupplifun, hagnýtingu gagna og gervigreindar með það markmið að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Með Berglindi fáum við öflugan liðsfélaga í okkar vegferð og erum sannfærð um að hún muni hafa jákvæð áhrif á þróun og vöxt núverandi og framtíðar viðskiptavina Origo.

Árni Geir Valgeirsson

Framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna

Berglind Una kemur til Origo með mikla reynslu af hugbúnaðarþróun og stafrænum umbreytingarverkefnum. Síðan 2018 hefur hún starfað hjá Gangverk, þar af sem Delivery Lead, þar sem hún leiddi þverfagleg og fjölþjóðleg teymi í stafrænni þróun fyrir viðskiptavini á borð við Sotheby’s og Kviku Banka. Síðasta árið hefur hún starfað sem Head of Operations hjá Basta, sprotafyrirtæki sem stofnað var af Gangverk og erlendum fjárfestum, þar sem hún stýrði rekstri og vöruþróun. Berglind Una er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur ásamt því lokið markþjálfun og menntun í QA. 

Deila frétt