12/10/2023

Dulkóðunarlykillinn að þínum gögnum er kannski í skránni

Origo hélt nýverið fjölsótta ráðstefnu um gagnadrifin fyrirtæki og hvernig þau geta nýtt gögnin til að ná betri árangri.

Áhorfendur á viðburði um gögn

Origo hélt nýverið fjölsótta ráðstefnu um gagnadrifin fyrirtæki og hvernig þau geta nýtt gögnin til að ná betri árangri og tryggt að lykillinn að þeim sé ekki skilinn eftir í skránni.

Samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni þá ber fyrirtækjum skylda til þess að nota tæknibúnað til að dulkóða persónuleg gögn og sjá til þess að lykilinn að dulkóðuninni sé geymdur á öðrum stað en gögnin sjálf. Á ráðstefnunni var Kaare Maartensen, öryggisráðgjafi hjá hinu alþjóðlega fyrirtæki Thalesgroup með erindi.

Á þessu er mikil brotalöm því aðeins 14% fyrirtækja segjast stjórna sjálfir dulkóðunarlyklum fyrir þær skýjalausnir sem þeir eru að nota og að meðaltali eru aðeins 45% viðkvæmra gagna dulkóðuð

Kaare Maartensen

Öryggisráðgjafi hjá Thalesgroup

Kaare Maartensen, öryggisráðgjafi hjá Thalesgroup að halda erindiKaare Maartensen, öryggisráðgjafi hjá Thalesgroup að halda erindi

Með gervigreind er auðvelt að falsa gögn, ert þú kannski orðinn bankaræningi?

Mörgum var brugðið þegar Kaare lýsti hvernig venjulegur maður gæti vaknað upp við það vera orðinn bankaræningi.

Þú gætir heyrt þína eigin rödd skipuleggja bankarán í símtali og séð þig á myndskeiði ráðast inn í banka til að ræna hann. Slík gögn gætu síðan farið eins og eldur um sinu á netinu og orðið til þess að lögreglan bankaði uppá hjá þér, því með gervigreind er auðvelt að falsa gögn.

Kaare Maartensen

Öryggisráðgjafi hjá Thalesgroup

Nauðsynlegt er því að geta rakið uppruna gagna ef svo ber undir og verja persónuleg gögn með tryggri dulkóðun. Því miður þá gleyma stjórnendur oft að ábyrgðin á því að öryggismálin uppfylli allar kröfur hvílir fyrst og síðast á fyrirtækjunum sjálfum en ekki þeim aðilum sem hýsa og geyma gögnin“, sagði Kaare að lokum.

0:00

0:00

Tengdar lausnir

Origo er leiðandi í uppsetningu, þjónustu og rekstri á miðlægum búnaði.

Sérfræðingar Origo geta veitt ráðgjöf um meðal annars netbúnað, netþjóna, gagnageymslur, stórtölvur og lausnir fyrir kerfissali.

Kona tekur vinnusímtal á skrifstofunni

Deila frétt