23/01/2026

Nýr vefur Veðurstofu Íslands tilnefndur til UT-verðlauna

Vefurinn gottvedur.is, sem unninn var af Origo og Metall Design Studio í samstarfi við Veðurstofu Íslands er tilnefndur til UT-verðlauna Ský í flokknum UT-Stafræn opinber þjónusta 2025.

Nýr vefur Veðurstofu Íslands, gottvedur.is, er tilnefndur til UT-verðlauna Ský í flokknum "UT-Stafræn opinber þjónusta 2025." Í flokknum eru tilnefndar lausnir sem skara fram úr og einfalda daglegt líf fólks. Vefsíður, öpp og rafrænar þjónustur falla undir þennan flokk.

Vefurinn er mikilvæg upplýsingaveita sem stuðlar að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar. Sem einn mest sótti vefur landsins þarf hann að þjóna öllum landsmönnum allan sólarhringinn, alla daga ársins, óháð álagi. Origo sá um endurnýjun vefsins í nánu samstarfi við Veðurstofuna og Metall Design Studio sem bar ábyrgð á hönnun vefsins.

Verkefnið fól í sér uppbyggingu á öflugum og nútímalegum innviðum, endurhönnun upplifunar og framsetningar og endurnýjanir á tæknilegum grunni með áherslu á notendaupplifun, uppitíma, öryggi og aðgengi.

UT-verðlaunin verða afhent á UTmessunni í Eldborg föstudaginn 6. febrúar næstkomandi.

Deila frétt