16/05/2025
Hvernig geta rótgróin fyrirtæki skapað menningu sem styður við nýsköpun?
Origo hélt pallborðsviðburð á Iceland Innovation Week þar sem reynslumiklir leiðtogar fóru yfir mikilvægi nýsköpunar fyrir samkeppnishæfni og hvernig rótgróin fyrirtæki geti byggt upp skapandi menningu.

Á pallborðsviðburði Origo á Iceland Innovation Week fóru reynslumiklir leiðtogar yfir mikilvægi nýsköpunar fyrir samkeppnishæfni og hvernig jafnvel rótgróin fyrirtæki sem eru með langa sögu geta byggt og viðhaldið skapandi menningu innan fyrirtækisins.
Reynslumiklir leiðtogar úr íslensku og alþjóðlegu atvinnulífi deildu sýn sinni á það hvernig sterk nýsköpunarmenning getur eflt samkeppnishæfni og hrint af stað raunverulegri framþróun innan fyrirtækja. Í umræðunum komu fram hagnýt dæmi, áskoranir og aðferðir sem fyrirtæki geta nýtt til að rækta frumkvæði og sveigjanleika í eigin rekstri.
Það mynduðust áhugaverðar umræður þar sem var varpað ljósi á hindranir, ávinning og tækifæri sem felast í því að vinna markvisst að því að byggja skapandi menningu.

Hindranir á vegi nýsköpunar
Þátttakendur pallborðsins voru sammála um það að nýsköpun væri grundvöllur fyrir framþróun, en það geti staðið hindranir í veginum.
Helstu hindranir sem nefndar voru:
Skortur á trausti eða svigrúmi til að gera mistök
Hugmyndum starfsfólks sé hafnað án hlustunar
Stjórnendur séu lokaðir fyrir hugmyndum eða breytingum
Ótti við óvissu og áhættu
Dæmi voru tekin um að stjórnendur geta verið hindrun þar sem þau hafna hugmyndum starfsmanna sinna, en þegar hugmyndum er stöðugt hafnað getur það leitt til þess að það dragi úr frumkvæði og sköpunarkrafti starfsmanna. Sömuleiðis getur hræðsla við óvissu og mistök dregið úr sköpunarkrafti.

Birna Dröfn framkvæmdastjóri Bulby vinnur að doktorsverkefni sínu í nýsköpunarfræðum við Háskólann í Reykjavík. Þar fjallar hún um „Creativity train” módelið sem lýsir því að nýsköpunarmenning samanstandi af fimm þáttum sem að þurfa að vera til staðar ef nýsköpunarmenning eigi að geta blómstrað innan fyrirtækja. Ef einn af þessum þáttum er ekki til staðar leiðir það til þess að „lestin“ stöðvist. Hún telur því að stjórnendur þurfi að vera meðvitaðir um þessa þætti ef þeir vilja efla sköpun innan síns fyrirtækis.

Nýsköpun veitir samkeppnisforskot
Í pallborðsumræðunum voru nefnd mörg dæmi um hvað einkennir fyrirtæki sem eru með nýsköpunarmenningu, en sem dæmi:
Vaxtarhugarfar og þolinmæði gagnvart mistökum
Virk hlustun á hugmyndir starfsmanna
Fjárfesting í rannsóknum og þróun
Gott utanumhald um ferla og ákvarðanatöku
Sveigjanlegum vinnuaðferðum
Þverfaglegri samvinnu
Samrómur var um það að nýsköpun skapar samkeppnisforskot og ef fyrirtæki tileinka sér ekki vinnubrögð og byggja skapandi menningu munu þau missa af lestinni. Nýsköpun sé eitthvað sem fyrirtæki þurfi að tileinka sér og rækta ef þau ætla að vera samkeppnishæf. Því er mikilvægt að skapa umhverfi innan fyrirtækja sem hvetur til nýsköpunar og ryður hindrunum úr vegi.

Við trúum því að framfarir verði aðeins knúnar áfram þegar tækni, fólk og hugmyndir tengjast. Það er ekki nóg að það verði hugmynd, hún þarf að vera útfærð og skapa virði. Nýsköpun er nauðsynlegur til að fyrirtæki þróist áfram. Ef fyrirtæki færist ekki áfram á meðan allur heimurinn gerir það, eru þau að dragast aftur út. Nýsköpun skapar ekki bara forskot, hún er skilyrði fyrir því að fyrirtæki nái forskoti.
Ari Daníelsson
•
Forstjóri Origo

Iceland Innovation week er árleg hátíð sem hefur það markmið að lyfta upp íslensku nýsköpunarumhverfi. Um 3500 gestir taka þátt í vikunni og Origo er meðal bakhjarla vikunnar.
Deila frétt