25/05/2023
Anna Petrova frá Startup Ukraine heimsækir Origo
Í tilefni Iceland Innovation Week buðum við Anna Petrova frá Startup Ukraine að koma og taka þátt á ráðstefnunni.

Anna Petrova er stofnandi og framkvæmdastjóri Startups Ukraine sem hefur það markmið að skapa og þróa menningu frumkvöðlastarfs í Úkraínu og styðja við sprotafyrirtæki. Anna hefur auk þess unnið ötult starf í þágu Úkraínskra kvenna á flótta.
Sem styrktaraðilar Iceland Innovation Week gat Origo tekið þátt í að bjóða Önnu til landsins til að taka þátt á ráðstefnunni. Hún kom auk þess í heimsókn til Origo og hélt einlæga kynningu fyrir starfsfólk.
Það er mögulegt að hugsa um nýsköpun á stríðstímum. Á krísutímum fæðast nýjar lausnir og það getur eflt hugmyndaflugið.
Anna Petrova
•
Stofnandi og framkvæmdastjóri Startups Ukraine

Hún brennur fyrir eflingu nýsköpunarhæfni og telur mikilvægt að viðhalda og efla nýsköpunarstarf landskvenna sinna. Úr því hafa sprottið tvö verkefni á Norðurlöndunum. Þetta eru hraðlar til að hjálpa Úkraínskum konum af stað með nýsköpunarverkefni: Westart í Danmörku og Google Digital Academy í Svíþjóð, þar sem voru yfir 300 umsækjendur. Verkefnin voru til dæmis á sviði tísku, kennslufræði, tækni og matar.
Oft býðst flóttafólki aðeins láglaunastörf sem fólkið í landinu vill ekki vinna. En Úkraínsku konurnar vilja það ekki endilega heldur. Þær búa yfir fjölbreyttri hæfni og vilja skapa sér verðugt líf og finna fyrir von.
Anna undirstrikar mikilvægi þess að konurnar geti skapað sér framtíð í nýju landi og eflt hæfni til að taka með heim aftur til að endurbyggja Úkraínskt samfélag.
Deila frétt