13/08/2026
Traust umgjörð um ábyrga notkun gervigreindar með ISO 42001
Magnus H. Nilsen hefur lokið vottun sem úttektarstjóri samkvæmt ISO 42001, alþjóðlegum staðli um stjórnunarkerfi fyrir gervigreind.

Með þessari sérþekkingu styrkir Origo þjónustuframboð sitt og getur leiðbeint fyrirtækjum við uppbyggingu, innleiðingu og úttektir á slíkum kerfum.
Ör þróun gervigreindar kallar á skýran ramma. Eftir því sem fyrirtæki samþætta gervigreind í auknum mæli við kjarnastarfsemi sína eykst þörfin fyrir örugga, ábyrga og gagnsæja umgjörð sem stenst kröfur viðskiptavina, eftirlitsaðila og alþjóðlegra staðla. ISO 42001 veitir slíkan ramma og auðveldar fyrirtækjum að sýna fram á ábyrga og markvissa nýtingu tækninnar.
Sérþekkingin verður hluti af þjónustunni Gæðastjóri til leigu, þar sem fyrirtæki fá aðgang að sérfræðingi í gæða- og stjórnunarkerfum án þess að þurfa að ráða í fullt starf.
Með stuðningi Origo geta fyrirtæki fengið heildstæða aðstoð við að uppfylla kröfur ISO 42001 – allt frá stefnumótun og áhættu- og áhrifamati til innri úttekta og undirbúnings fyrir vottun.
Í stað þess að byggja upp sérþekkinguna frá grunni fá viðskiptavinir Origo beinan aðgang að sérfræðingi sem þekkir bæði kröfur staðalsins og íslenskt atvinnulíf. Þannig geta fyrirtæki byggt upp traustan grunn að ábyrgri nýtingu gervigreindar og styrkt samkeppnisstöðu sína.
Nánari upplýsingar um þjónustuna Gæðastjóri til leigu og CCQ-kerfið, sem styður við innleiðingu og eftirfylgni stjórnunarkerfa, má finna hér.
Deila frétt