16/04/2026

Jóhann Gunnar leiðir viðskipaþróun Origo  

Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn til að leiða viðskiptaþróun með áherslu á gervigreind, gagnanýtingu og stafræna umbreytingu.

Origo hefur ráðið Jóhann Gunnar Jóhannsson í hlutverk forstöðumanns viðskiptaþróunar. Í hlutverkinu mun Jóhann leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun nýrra viðskiptatækifæra hjá Origo með sérstaka áherslu á hagnýtingu gagna og gervigreindar og stafræna umbreytingu fyrirtækja. 

Jóhann kemur frá alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu Accenture í Zürich, þar sem hann starfaði sem verkefnastjóri stafrænnar stefnumótunar og áður sem ráðgjafi. Þar leiddi hann fjölbreytt stefnumótunarverkefni í samstarfi við stjórnendur og fjárfesta, meðal annars á sviði gervigreindar, stafrænnar umbreytingar markaðssóknar og hagræðingar í rekstri. Áður starfaði Jóhann í alþjóðlegu stefnumótunarteymi Marel og í viðskiptaþróun hjá Alvogen/Alvotech. 

Við fögnum því að fá Jóhann til liðs við Origo. Origo hefur tekið miklum breytingum frá afskráningu þess á markaði og er í dag hreint þjónustu- og þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni í mikilli sókn. Öflug reynsla og bakgrunnur Jóhanns úr stefnumótun og hagnýtingu tækni styður frábærlega við okkar markmið um að hjálpa viðskiptavinum okkar að búa til virði og forskot með tækninni.

Sigurður Tómasson,

Framkvæmdastjóri Vaxtar og Viðskiptaþróunar hjá Origo

„Upplýsingatækni er á fleygiferð og tækifærin til verðmætasköpunar í rekstri fyrirtækja og stofnana hafa aldrei verið meiri. Á sama tíma eru þau fyrirtæki sem taka gervigreind föstum tökum núna að leggja grunninn að samkeppnisforskoti morgundagsins, hvort sem er á innanlandsmarkaði eða á alþjóðlegum vettvangi. Origo hefur sterka stöðu og djúpa sérþekkingu á sviði gagna og gervigreindar, og ég hlakka til að vinna með teyminu að því að þróa lausnir sem skila mælanlegum árangri fyrir viðskiptavini," segir Jóhann Gunnar Jóhannsson. 

Jóhann er með meistaragráðu í Management, Technology and Economics frá ETH Zürich, þar sem hann hlaut framúrskarandi árangur og viðurkenningu fyrir rannsóknir á notkun gervigreindar til að bæta ákvarðanatöku í aðfangakeðjum. Hann lauk BSc gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. 

Deila frétt