06/06/2025
Linda Dögg útnefnd verðmætasti fagaðili hjá Microsoft
Linda Dögg Guðmundsdóttir, öryggis- og lausnaarkitekt hjá Origo hefur verið útnefnd sem verðmætasti fagaðilinn (e. Most Valuable Professional) hjá Microsoft en hún er fyrst íslenskra kvenna sem hlýtur nafnbótina.

Fyrst íslenskra kvenna sem hlýtur nafnbótina
Linda Dögg Guðmundsdóttir, öryggis- og lausnaarkitekt hjá Origo hefur verið útnefnd sem MVP (e. Most Valuable Professional) hjá Microsoft. Linda er fyrst íslenskra kvenna sem hlýtur nafnbótina, en sex einstaklingar í tæknigeiranum á Íslandi bera þennan titil í dag.
Microsoft MVP eru viðurkenningar sem Microsoft veitir leiðtogum í tæknigeiranum sem hafa lagt mikið af mörkum og sýnt fram á leiðtogahæfni, framúrskarandi hæfni á sínu sviði og frumkvæði til að miðla reynslu og þekkingu áfram í þjóðfélaginu. Viðurkenningarnar eru veittar í nokkrum flokkum og Linda Dögg var útnefnd í M365 Copilot flokknum.
Ég hef mikla ástríðu fyrir því að hjálpa öðrum og deila þekkingu og ég vissi að ég ætti fullt erindi í þessa nafnbót. Eftir að hafa kynnt mér samfélagið nánar kemur í ljós að engin kona á Íslandi hefur fengið þessa nafnbót. Og þá kviknaði á keppnisskapinu. Á því augnabliki tók ég ákvörðun um að verða sú fyrsta.
Linda Dögg Guðmundsdóttir
•
öryggis- og lausnaarkitekt hjá Origo
Hún stofnaði meðal annars M365 hóp á Íslandi sem kemur saman mánaðarlega og fær fyrirlesara í heimsókn til að deila þekkingu sinni. Linda heldur einnig uppi vefsíðu, skrifar greinar og heldur reglulega fyrirlestra á Íslandi og erlendis.
Eina leiðin til að verða Microsoft MVP er að verða tilnefndur af öðrum MVP eða af starfsmanni Microsoft. Þau sem eru tilnefnd þurfa að geta sýnt fram á hvað þau hafa lagt af mörkum í sínu nærsamfélagi yfir síðustu 12 mánuði.
MVP viðurkenningin veitir sérfræðingum eins og Lindu sterkari tengsl inn í Microsoft í Bandaríkjunum, meiri innsýn í hvað sé á döfinni og aukin áhrif á vöruþróun innan Microsoft.

Keppnisskapið keyrði hana áfram
Linda segir að áhuginn á MVP samfélaginu hafi kviknað á Microsoft 365 ráðstefnu í Las Vegas fyrir tveimur árum. Hún varð heilluð af samfélaginu og kynntist nokkrum „MVP-um“ sem héldu fyrirlestra.
Það voru alveg þónokkrir sem reyndu að tala mig niður, sögðu að þetta yrði alltof mikil vinna að ná þessu, en það voru mun fleiri sem hvöttu mig áfram og ég fékk frábæran stuðning frá yfirmönnum mínum hjá Origo sem vildu sjá mig ná þessu markmiði. Það er ekkert sjálfsagt að fá svona stuðning frá vinnunni sinni, en ég hef verið ótrúlega heppin með þá yfirmenn sem ég hef haft síðustu árin og er ég mjög þakklát fyrir það
Linda Dögg Guðmundsdóttir
•
öryggis- og lausnaarkitekt hjá Origo
Deila frétt