06/11/2026
Maven og Datalab sameinast Origo undir einu merki
Samþætting styrkir þjónustuframboð Origo á sviði gagna, gervigreindar og stafrænnar umbreytingar

Origo hefur lokið samþættingu félaganna Maven og Datalab inn í starfsemi fyrirtækisins. Með þessu verða sérfræðingar félaganna hluti af teymum Origo og þjónusta þeirra framvegis veitt undir merkjum Origo.
Kaup Origo á Maven og Datalab er liður í að styrkja enn frekar stöðu fyrirtækisins á sviði stafrænnar umbreytingar, gagna og gervigreindar. Frá þeim tíma hefur verið unnið markvisst að samþættingu starfseminnar og hefur sú vinna nú verið kláruð.
Sterkara teymi með breiðari sérþekkingu
Samþættingin sameinar sérþekkingu og reynslu Maven á sviði gagna, gagnainnviða, gagnagreiningar og viðskiptagreindar við sterka stöðu Datalab í ráðgjöf og innleiðingu gervigreindarlausna. Með samþættingunni verður til enn öflugra þekkingarsamfélag innan Origo til að styðja fyrirtæki og stofnanir við umbreytingu á rekstri sínum með markvissri nýtingu gagna og gervigreindar.
Viðskiptavinir munu áfram njóta sömu sérþekkingar og þjónustu sem fyrr en jafnframt fá aðgang að víðtækara þjónustuframboði Origo. Með sameinuðum kröftum getur Origo nú boðið enn heildstæðari lausnir sem ná allt frá stefnumótun og ráðgjöf til hönnunar, innleiðingar og reksturs tæknilausna.
Aukin geta til að leiða stafræna umbreytingu
Með því að verða hluti af Origo fá teymin enn sterkari grunn til að hjálpa fyrirtækjum að umbreyta gögnum í raunverulegt virði og nýta gervigreind á markvissan og ábyrgan hátt. Sameinuð búa teymin yfir einstakri breidd þekkingar sem mun nýtast viðskiptavinum.
Það hefur verið afar ánægjulegt að sjá hversu vel teymi Maven, Datalab og Origo hafa fallið saman. Við deilum sömu sýn á hvernig gögn og gervigreind geta hjálpað fyrirtækjum að ná betri árangri. Með þessari sameiningu verður til eitt öflugasta sérfræðiteymi landsins á þessu sviði og það skapar spennandi tækifæri til nýsköpunar og verðmætasköpunar fyrir viðskiptavini okkar
Helgi Hrafn Halldórsson
•
Forstöðumaður gagna og gervigreindar hjá Origo
Sérþekking sem byggð hefur verið upp í áratug
Samþætting Maven og Datalab inn í Origo markar jafnframt nýjan kafla í sögu tveggja fyrirtækja sem hafa haft umtalsverð áhrif á þróun gagna- og gervigreindarlausna hér á landi.
Datalab var stofnað árið 2016 og hefur frá upphafi verið meðal frumkvöðla á sviði gervigreindar á Íslandi. Fyrirtækið var eitt af fyrstu sérhæfðu ráðgjafarfyrirtækjum landsins á þessu sviði og hefur á undanförnum tíu árum unnið að fjölmörgum verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í mörgum tilfellum voru verkefnin meðal fyrstu skrefa íslenskra fyrirtækja í nýtingu gervigreindar og þannig hefur Datalab átt mikilvægan þátt í að ryðja brautina fyrir þá þróun sem við sjáum í dag.
Á sama hátt hefur Maven byggt upp sterka stöðu á sviði gagna, gagnainnviða og gagnadrifinnar ákvarðanatöku og hjálpað fjölmörgum fyrirtækjum að umbreyta gögnum í verðmæta innsýn og betri rekstrarákvarðanir.
Þar sem gögn, gervigreind og rekstur mætast
Undanfarin ár hefur eftirspurn eftir gagnadrifnum lausnum og hagnýtingu gervigreindar aukist hratt. Fyrirtæki leita í auknum mæli eftir samstarfsaðila sem getur tengt saman stefnu, gögn, tæknilausnir og rekstur. Með samþættingunni er Origo enn betur í stakk búið til að mæta þeirri þörf og styðja við viðskiptavini á öllum stigum stafrænnar umbreytingar.
Við sjáum framtíð þar sem mörkin milli gagna, gervigreindar og viðskiptaferla verða sífellt óskýrari. Fyrirtæki munu ekki aðeins nota mælaborð til að skoða hvað gerðist í gær heldur munu gervigreindarlausnir greina tækifæri, leggja fram tillögur og framkvæma verkefni í samstarfi við starfsfólk. Með sameinuðum styrkleikum Maven, Datalab og Origo erum við að byggja upp þann grunn í dag, hvort sem það er með lausnum á borð við Bifröst, Gróttu, Microsoft Fabric eða nýjum gervigreindarerindrekum sem munu gegna sífellt stærra hlutverki í rekstri fyrirtækja á komandi árum.
Brynjólfur Borgar Jónsson
•
Stofnandi Datalab
Þótt starfsemi þessara félaga færist nú undir eitt vörumerki hverfur þessi sérþekking ekki. Þvert á móti. Fólkið, reynslan og þekkingin sem byggð hefur verið upp innan Maven og Datalab verður áfram kjarninn í þeirri þjónustu sem Origo veitir á sviði gagna, gervigreindar og stafrænnar umbreytingar.
Við erum enn hér. Við erum sama fólkið. Nú höfum við bara stærri leikvöll.
Brynjólfur Borgar Jónsson
•
Stofnandi Datalab
Næsta skref í uppbyggingu Origo
Samþættingin markar næsta skref í uppbyggingu Origo sem leiðandi tæknifyrirtækis á Íslandi og styrkir enn frekar getu félagsins til að skapa viðskiptavinum verðmæti með gögnum, gervigreind og nýsköpun.
Við höfum skýra framtíðarsýn um að Origo verði fyrsti kostur fyrirtækja þegar kemur að stafrænni umbreytingu, gögnum og gervigreind. Með innkomu teymanna frá Maven og Datalab höfum við tekið stórt skref í þá átt. Saman búum við yfir einstakri breidd þekkingar sem gerir okkur kleift að hjálpa viðskiptavinum að fara alla leið, frá stefnumótun og greiningu til innleiðingar og rekstrar. Ég er afar stoltur af því að bjóða þessa öflugu sérfræðinga velkomna til Origo og hlakka til að sjá þau tækifæri sem þessi sameinaði kraftur mun skapa fyrir viðskiptavini okkar.
Árni Geir Valgeirsson
•
Forstjóri Origo
Deila frétt