30/05/2025
Nemendur HR kynna spennandi lokaverkefni unnin í samstarfi við Veðurstofu Íslands og Origo
Nemendur HR kynntu lokaverkefni sín fyrir starfsfólki Origo á dögunum, en hóparnir þróuðu tvo nýja veðurvefi, krakkaveður og veðurlite.

Það var svo sannarlega uppskeruhátíð á föstudaginn síðastliðinn þegar nemendur frá Háskólanum í Reykjavík kynntu áhugaverð lokaverkefni sín fyrir starfsfólki Origo.
Nemendurnir hafa unnið verkefnin í samstarfi við Origo og Veðurstofu Íslands en annar hópurinn þróaði vef sem kallast krakkaveður en hinn vann að einfaldaðri útgáfu af gottvedur.is sem kallast veðurlite.
Ég fékk þann heiður að styðja við tvo lokaverkefnishópa úr háskóla og var virkilega hrifinn af tæknilegri færni þeirra. Þau þurftu litla aðstoð og unnu verkefnin í tæknistakki sem notaður er á íslenskum vinnumarkaði – án vandræða.
Ævar Þór Gunnlaugsson
•
Full stack forritari
Krakkaveður
Þau Gissur, Kristinn, Hallgrímur og Guðlaug tóku að sér það skemmtilega verkefni að þróa vefsíðu sem er sérstaklega hönnuð fyrir börn. Markmiðið er að efla börn í að læra og skilja ólík veðurskilyrði.

Á vefnum má finna gagnvirkt veðurkort sem sýnir hitastig bæði í tölulegu og myndrænu formi. Börnin geta leikið sér og skoðað orð dagsins þar sem kynnt eru veðurtengd orð ásamt skýringum. Þegar smellt er á stað á kortinu birtist mynd af Blæ, vinalegum apa sem sýnir hvernig best er að klæða sig eftir veðri. Ef spáð er rigningu birtist Blær í regnfötum, en ef sólin skín og hlýtt er úti gæti hann verið í léttri peysu og strigaskóm.

Þetta starfsnám hefur haft mikil áhrif á framtíðarstefnu mína. Ég fékk betri innsýn í hvernig það er að starfa í upplýsingatæknigeiranum. Áhersla mín í náminu hefur verið á vef- og viðmótshönnun, og að fá að vinna að verkefni sem var ekki aðeins skemmtilegt og fræðandi, heldur einnig í takt við það sem ég stefni að í framtíðinni, er ómetanleg reynsla.
Guðlaug Sirung Vestmann
•
Nemandi í grunnnámi í tölvunarfræði
Veðurlite
Einar, Andri, Valmar og Sigurbjörn þróuðu einfaldaða útgáfu af gottvedur.is þar sem hægt er að nálgast grunnupplýsingar um veðrið. Þessi vefur er sérstaklega hannaður fyrir þau sem eru með takmarkað netsamband, til dæmis á hálendinu, og þarfnast fljótlegs aðgangs að nauðsynlegum veðurupplýsingum. Vefurinn er hugsaður í þeim tilgangi að vera fyrir viðbragðsaðila.

Veðurlite leyfir notendum að vista síðu á forsíðuna hjá sér (e. home screen) og hefur þann eiginleika að geta vistað gögn í tækið þitt. Ef einstaklingur endar netlaus, þá er hægt að sjá þau gögn sem var búið að sækja áður en einstaklingurinn missti samband við netið. Krakkaveður og Veðurlite hafa ekki verið gefnir út og eru því ekki aðgengilegir.

Það gagnlegasta við starfsnámið var klárlega samstarfið við Origo og Veðurstofu Íslands. Að fá að koma og vinna í Origo og fá að upplifa hvernig alvöru hugbúnaðargerð fer fram er örugglega eitt það gagnlegasta sem ég hef lært í mínu námi.
Andri Kristinn Sigurðarson
•
Nemandi í grunnnámi í tölvunarfræði
Deila frétt