27/05/2024

Ungmenni kepptu í Gagnaglímu um helgina

Gagnaglíman, árleg netöryggiskeppni fór fram um helgina en markmið keppninnar er að efla áhuga íslenskra ungmenna á netöryggi.

Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglíman, fór fram í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn. Gagnaglíman er árleg keppni sem hefur það markmið að efla áhuga íslenskra ungmenna á netöryggi og auka þekkingu og færni þeirra sem sýna því áhuga.  Origo og netöryggisfyrirtækið Syndis eru styrktaraðilar keppninnar.

Hlutverk keppninnar er einnig að velja 10 manna lið til að taka þátt í Netöryggiskeppni Evrópu European Cyber Security Challenge (ECSC) fyrir Íslands hönd sem haldin verður í Tórínó á Ítalíu seinna á árinu.  Markmið ECSC er að vekja áhuga á netöryggi um alla Evrópu og efla þannig stafrænt öryggi.

Stafrænt öryggi er brýnt samfélagsmál, sem við viljum taka þátt í að tryggja. Gagnaglíman er mikilvæg til að efla nýliðun í faginu, vekja áhuga og veita þjálfun. Samfélagið þarf fleiri sérfræðinga í netöryggi og við erum því stolt af því að vera bakhjarlar Gagnaglímunnar.

Ari Daníelsson

Forstjóri Origo

Hverju var keppt í?

Verkefni keppninnar eru af ýmsum toga, en snúast í flestum tilfellum í að notfæra sér öryggisveikleika í tölvukerfum. Þau geta falið í sér að notfæra sér galla í hugbúnaði, eins og vefsíðum eða forritum eða að brjóta óörugga dulkóðun. Aðferðirnar sem keppendur beita eru í raun þær sömu og hakkarar beita við árásir á raunverulegum tölvukerfum.

Verkefnin eru öll smíðuð af dæmahöfundum keppninnar og keyrð í einangruðu umhverfi, þannig keppnin felur ekki í sér árásir á neinn hugbúnað sem er í raunverulegum rekstri.

Hakkaraskólinn, sem er nýjung í ár, hefur það að markmiði að bjóða upp á aðgengilegt kynningarefni fyrir byrjendur, sem hafa enga fyrri reynslu, og undirbúa þá þannig fyrir þátttöku í Gagnaglímunni. 

Gagnaglíman er vettvangur sem hvetur til ástundunar á netöryggi á skemmtilegan hátt, þar sem keppendur glíma við raunhæf verkefni og líkja eftir árásaraðferðum tölvuþrjóta. Margir tengja netöryggi við staðalímyndina um "tölvunördinn", og halda að það sé allt of flókið að komast inn í þennan heim, en það er þó alls ekki þannig. Færni í netöryggi snýst, að mestu leyti, um skapandi hugsun, eða að "hugsa út fyrir kassann". Svo má ekki gleyma að það sama á við um netöryggi og allt annað sem maður tekur sér fyrir hendur að færni krefst bara áhuga og ástundunar."

Hjalti Magnússon

Formaður Gagnaglímufélags Íslands

Úrslit Gagnaglímunnar 2024

Samtals tóku 16 keppendur þátt í keppninni í ár.  Þrír í yngri flokki, 14-20 ára, og 13 í eldri flokki, 21-25 ára.

Veitt voru verðlaun fyrir efstu fimm sætin, óháð aldursflokki. Einnig voru veitt aukaverðlaun, en þau voru besti nýliðinn í yngri flokkibesti nýliðinn í eldri flokki og besta frammistaða í staðbundnum verkefnum. Anton Egilsson, forstjóri Syndis og Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri Origo afhentu keppendum verðlaunin. 

Hjalti Magnússon formaður Gagnaglímufélags Íslands, Kristinn Vikar Jónsson, Samúel Arnar Hafsteinsson, Elvar Árni Bjarnason og Anton Egilsson forstjóri Syndis. Hjalti Magnússon formaður Gagnaglímufélags Íslands, Kristinn Vikar Jónsson, Samúel Arnar Hafsteinsson, Elvar Árni Bjarnason og Anton Egilsson forstjóri Syndis.

Stigakeppni

  1. Elvar Árni Bjarnason 6840 stig

  2. Samúel Arnar Hafsteinsson 4836 stig

  3. Kristinn Vikar Jónsson 3421 stig

  4. Dagur Benjamínsson 2929 stig

  5. Haraldur Jón Friðriksson 2848 stig

Besti nýliðinn í yngri flokki

Matthías Andri Hrafnkelsson

Besti nýliðinn í eldri flokki

Haraldur Jón Friðriksson

Besta frammistaða í staðbundnum verkefnum

Elvar Árni Bjarnason

Deila frétt