02/07/2026
Origo styrkir stöðu sína með Maven og Datalab
Origo hefur lokið kaupum á Maven og skrifað undir samning um kaup á Datalab. Með þessum tveimur skrefum styrkir Origo stöðu sína verulega á sviði stafrænnar þróunar, gagna og gervigreindar og byggir upp eitt öflugasta teymi landsins á þessu sviði.

Öflugri ráðgjöf í stafrænni umbreytingu
Með Maven bætist við öflug sérþekking á ráðgjöf, gagnadrifinni umbreytingu og þróun stafrænna lausna. Maven hefur um árabil aðstoðað fyrirtæki við að nýta gögn til betri ákvarðanatöku, nútímavæða gagna- og tækniumhverfi og móta framtíðarsýn í upplýsingatækni.
Sameiningin styrkir getu Origo til að leiða stafræna umbreytingu fyrirtækja með heildstæðri ráðgjöf, þróun og innleiðingu gagnadrifinna lausna.
Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að hjálpa fyrirtækjum að nýta gögn og tækni á markvissan hátt til að ná betri árangri. Sem hluti af Origo fáum við tækifæri til að byggja ofan á þá vegferð með enn öflugra baklandi, breiðari sérþekkingu og sterkara samstarfi þvert á ólík fagsvið. Það gerir okkur kleift að takast á við enn stærri og flóknari verkefni og skapa enn meira virði fyrir viðskiptavini. Fram undan eru spennandi tímar og við hlökkum til að halda áfram að vaxa með Origo,
Helgi Hrafn Halldórsson.
•
Framkvæmdarstjóri Maven
Eitt öflugasta teymi landsins á sviði gagna og gervigreindar
Brynjólfur Borgar, framkvæmdarstjóri DatalabKaupin á Datalab byggja ofan á þessa vegferð. Datalab hefur undanfarinn áratug verið leiðandi á sviði gagnavísinda og gervigreindar á Íslandi og aðstoðað fyrirtæki og stofnanir við að umbreyta gögnum í hagnýtar lausnir sem bæta rekstur og auka samkeppnishæfni.
Með sameiningunni verður til eitt öflugasta teymi landsins á sviði gagna og gervigreindar sem mun hjálpa íslenskum fyrirtækjum og stofnunum að nýta gögn og gervigreind til aukinnar verðmætasköpunar.
Gögn eru grunnurinn að árangursríkri hagnýtingu gervigreindar. Hjá Datalab höfum við frá stofnun lagt áherslu á að umbreyta gögnum í hagnýta innsýn og lausnir sem skapa raunveruleg verðmæti í rekstri fyrirtækja og stofnana. Með því að ganga til liðs við Origo fléttum við sérhæfingu Datalab á sviði gervigreindarlausna og ráðgjafar saman við víðtæka tækniinnviði og stafræna ráðgjöf Origo. Saman getum við hjálpað viðskiptavinum að ná enn lengra í nýtingu gagna og gervigreindar og styrkt samkeppnishæfni þeirra í ört breytilegu rekstrarumhverfi.
Brynjólfur Borgar Jónsson
•
Framkvæmdarstjóri Datalab
Sterkari heildarlausnir fyrir viðskiptavini
Með sameiningunni eykur Origo enn frekar getu sína til að styðja fyrirtæki í stafrænni umbreytingu – allt frá stefnumótun og ráðgjöf til þróunar, innleiðingar og rekstrar.
„Maven og Datalab eru hvort um sig framúrskarandi á sínu sviði. Maven býr yfir djúpri þekkingu á gögnum og gagnavinnslu og Datalab er í fremstu röð í hagnýtingu gervigreindar. Innan Origo eru þau í frábærri stöðu til að verða enn öflugri og saman byggjum við upp eitt sterkasta teymi landsins á þessu sviði. Við leggjum áherslu á að hjálpa viðskiptavinum okkar að nýta gögn og gervigreind til verðmætasköpunar, frá stefnumótun og þróun til innleiðingar og rekstrar,“
Árni Geir Valgeirsson
•
Forstjóri Origo
Eftir sameininguna býr Origo yfir enn breiðari sérþekkingu á sviði upplýsingatækni, allt frá stefnumótun og notendaupplifun til hugbúnaðarþróunar, gagnainnviða, gervigreindar, öryggis, skýjalausna og rekstrar.
Þessi áfangi styrkir Origo sem leiðandi samstarfsaðila íslenskra fyrirtækja og stofnana sem vilja nýta gögn, gervigreind og stafræna tækni til að skapa aukin verðmæti og byggja upp samkeppnisforskot til framtíðar.
Deila frétt