06/02/2026
Almyrkvi á UTmessunni
Á bás Origo á UTmessunni bjóðum við gestum að staldra við og skoða stafræna vegferð frá nýju sjónarhorni. Þar notum við almyrkvann sem myndmál fyrir hringrás framfara, hvernig rekstur, öryggi, breytingar og vöxtur tengjast í stöðugri samstillingu.

UTmessan er hafin
UTmessan er hafin og á bás Origo bjóðum við gestum að staldra við og skoða stafræna vegferð frá nýju sjónarhorni. Ekki til að flækja hlutina frekar, heldur til að skapa skýrleika í umhverfi þar sem breytingar eru hraðar og ákvarðanir sífellt flóknari.
Þemað í ár er almyrkvi, tákn fyrir þær aðstæður sem margir kannast við í rekstri og upplýsingatækni. Þegar óvissa skapast, forsendur breytast og það sem áður virtist augljóst verður óljóst. Í slíkum aðstæðum skiptir máli að hafa yfirsýn og traustan grunn til að byggja ákvarðanir á. Á básnum nýtum við almyrkvann sem myndmál fyrir hringrás framfara, hvernig rekstur, öryggi, breytingar og vöxtur tengjast í stöðugri samstillingu.
Líkt og almyrkvi snýst stafrænn árangur ekki um einn punkt, eina ákvörðun eða eina lausn, heldur samspil heildarinnar. Þegar forsendur eru skýrar og grunnurinn traustur verður auðveldara að horfa til framtíðar, jafnvel þegar aðstæður breytast hratt.
Á UTmessunni bjóðum við upp á gagnvirkan leik til að fræðast um almyrkvann.Stjörnu Sævar kynnir leyndardóma almyrkvans
Á laugardaginn frá kl. 11:00-14:30 mun Stjörnu Sævar fræða gesti um almyrkva og þann einstaka náttúruviðburð sem fram undan er. Á básnum bjóðum við upp á gagnvirkan leik, en í gegnum leikinn upplifa gestir almyrkvann og fræðast um leið um tilurð þessara sjaldgæfu náttúruatburða. Leikurinn er dæmi um það hvernig hægt er að miðla flóknum vísindum með stafrænni tækni á lifandi og skemmtilegan hátt.
Við hlökkum til að sjá ykkur á UTmessunni.
Deila frétt