07/07/2022

Origo eykur stuðning við nýsköpun

Origo undirritaði samstarfssamning við KLAK - Icelandic Startups um samvinnu um samfélagshraðalinn Snjallræði og eykur þannig enn frekar við stuðning sinn við nýsköpun á Íslandi.

Kristín Soffía Jónsdóttir og Lóa Bára Magnúsdóttir

Origo verður einn bakhjarla Snjallræðis en Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri Origo undirritaði samning þess efnis við Kristínu Soffíu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra KLAK – Icelandic Startups á dögunum í Grósku.

Samfélagshraðallinn Snjallræði er ætlað að draga fram, efla og styðja nýja tækni og aðferðir sem raunverulega styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Umsjón hraðalsins er í höndum KLAK - Icelandic Startups sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi.

Origo hefur verið í eigendahóp KLAK frá upphafi og hefur í fjölda ára lagt áherslu á nýsköpun í allri sinni starfsemi. 

Við höfum skilgreint nýsköpun sem eitt af áhersluatriðum í samfélagsstefnu Origo. Við teljum að það sé einmitt með nýsköpun og tækni sem samfélagsvandamál framtíðarinnar verða leyst. Snjallræði er hraðall sem gengur einmitt út á það, að styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Lóa Bára Magnúsdóttir

Markaðsstjóri Origo

Verkefni sem þróuð hafa verið innan Snjallræði hraðalsins hafa nú þegar haft margvísleg jákvæð áhrif á samfélagið. Markmið Snjallræði er að ýta undir nýsköpun sem tekst á við áskoranir samtímans. Lóa segir enn fremur:

"Það hefur lengi hallað á konur í fjárfestingu í nýsköpun. En það sem er jákvætt við Snjallræði er hvað kvenfrumkvöðlum hefur vegnað vel eftir þátttöku í þessum hraðli. Við hlökkum til að styðja við verkefnin í Snjallræði og fögnum aðkomu MIT sem býður upp á metnaðarfullan vettvang til nýsköpunar."

Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups og Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri OrigoKristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups og Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri Origo

Snjallræði er einstakt vaxtarrými (e. incubator) fyrir nýsköpunarverkefni allt frá hugmyndastigi og að mótuðum fyrirtækjum. Lögð er áhersla á samfélagslega nýsköpun og horft til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Í vor náðist samningur við MIT DesignX um samtarf um Snjallræði og verður verkefnið unnið af og með sérfræðingum frá MIT DesignX sem koma til landsins og halda vinnustofur verður Snjallræði því vottað DesignX vaxtarrými. 

Það er gaman að sjá Origo taka stuðning sinn enn lengra og koma inn sem bakhjarl auk þess að vera einn af okkar eigendum. Origo mun leggja verkefninu fjármagn auk þess sem þau koma inn með verðmæta þekkingu og reynslu sem mun nýtast þátttakendum vel.

Kristín Soffía Jónsdóttir

Framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups

Opnað var fyrir umsóknir í Snjallræði þann 29. júní og er umsóknarfrestur til 7. ágúst. Áhugasömum frumkvöðlum sem brenna fyrir því að gera heiminn betri er bent á að sækja um á snjallraedi.is.

Deila frétt