03/06/2026
Origo flytur í nýjar og framsæknar höfuðstöðvar á Dalvegi
Mánudaginn 8. júní kveðjum við Borgartúnið og opnum nýjar höfuðstöðvar að Dalvegi 30A í Kópavogi. Þar sameinast öll félög Skyggnis í nútímalegu tæknisamfélagi.

Í nýja húsnæðinu sameinast Origo undir einu þaki með öðrum félögum innan Skyggnis-samstæðunnar, en þau eru Syndis, Helix, Aftra, Corus, Datalab og Advise. Saman mynda félögin öflugt samfélag 350 sérfræðinga á sviði hugbúnaðarþróunar, innviða og tækniþjónustu. Með flutningnum skapast sterkari tenging milli teyma, aukin þekkingarmiðlun og enn betri aðstaða til að þróa og veita framúrskarandi stafrænar lausnir fyrir íslenskt atvinnulíf.
Þar sem fólk, þekking og tækni mætast
Nýju höfuðstöðvarnar á Dalvegi eru sérhannaðar með þarfir félaganna í huga og bjóða upp á sveigjanlegt og nútímalegt vinnuumhverfi. Þar verður fyrsta flokks aðstaða fyrir fundi, ráðgjöf, viðburði og daglegt samstarf við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Húsnæðið er í eigu Íþaka og sá verktakafyrirtækið Eykt um framkvæmd verkefnisins. ASK Arkitektar hönnuðu húsið og Yrki Arkitektar sáu um innanhússhönnun.
Flutningurinn á Dalveg er mikilvægur áfangi fyrir Origo og systurfélög okkar innan Skyggnis. Nýja vinnuumhverfið er hannað til að styðja fullkomlega við það hvernig við vinnum í dag — þvert á teymi, í þéttu samstarfi við viðskiptavini og í stöðugri þróun stafrænna lausna. Þessi flutningur gefur okkur kraft til að sækja fram af enn meiri þunga.
Ari Daníelsson
•
Forstjóri Skyggnis
Fulltrúar Skyggnisfélaganna á Dalvegi ásamt aðilum sem komu að hönnun og uppbyggingu húsnæðisins.Undirbúningur flutninganna hefur staðið yfir undanfarna mánuði og stefnt er að því að öll starfsemi félaganna sjö verði komin á Dalveg fyrir lok júní.
Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum, samstarfsaðilum og gestum á Dalvegi 30A.
Deila frétt