12/11/2026

Origo hlýtur Gold Partner stöðu hjá HPE

Viðurkenning sem byggir á árangri í þjónustu við viðskiptavini og alþjóðlega vottuðum sérfræðingum

Origo hefur hlotið Gold Partner stöðu hjá Hewlett Packard Enterprise (HPE) fyrir samstarfsárið 2027 og er eini samstarfsaðili HPE á Íslandi með þessa stöðu í sölu og þjónustu á netlausnum á tímabilinu. Viðurkenningin staðfestir sterkt samstarf fyrirtækjanna og þá miklu sérþekkingu sem hefur byggst upp innan Origo á sviði netlausna. 

Það sem skiptir þó mestu máli er hvað þessi staða þýðir fyrir viðskiptavini Origo. 

Viðurkenning sem skilar sér til viðskiptavina 

Gold Partner staðan í netlausnum byggir á kröfum HPE um bæði árangur og tæknilega hæfni. Til að öðlast og viðhalda stöðunni þarf samstarfsaðili að sýna fram á árangur í sölu og þjónustu og búa yfir sérfræðingum með alþjóðlega viðurkenndar vottanir, bæði á vörum HPE og í tækninni sjálfri. 

Fyrir viðskiptavini Origo þýðir þetta meðal annars: 

  • Aðgang að sérfræðingum með vottaða þekkingu á víðnetum, staðarnetum, þráðlausum netum, gagnaverum og netöryggi 

  • Betri aðgang að hagstæðum kjörum á netbúnaði og netlausnum HPE 

  • Beinan aðgang að tæknilegum stuðningi ásamt sérfræðingum HPE ef á þarf að halda 

  • Öflugan samstarfsaðila við hönnun, uppbyggingu, innleiðingu og rekstur netinnviða 

Þekkingin skiptir mestu máli 

Netið er ein af grunnstoðum nútíma reksturs. Fyrirtæki þurfa að geta treyst því að netinnviðir séu rétt hannaðir frá upphafi, öruggir og í stakk búnir til að mæta sífellt meiri kröfum um afköst og rekstraröryggi. 

Að baki Gold Partner stöðunni í netlausnum stendur öflugur hópur sérfræðinga Origo sem hefur árum saman byggt upp og viðhaldið þekkingu á meðal annars víðnetum, staðarnetum, þráðlausum netum, gagnaverum og öryggislausnum. Sú sérþekking nýtist hvort sem fyrirtæki eru að byggja upp ný net, endurnýja eldri búnað eða mæta auknum kröfum um öryggi, afköst eða skalanleika. 

Origo hefur árum saman byggt upp mikla þekkingu og þjónustugetu á HPE netbúnaði. Gold Partner staða Origo hjá HPE endurspeglar þrotlausa vinnu okkar fólks og traust viðskiptavina okkar. Við eigum fjölmargar árangursríkar innleiðingar að baki á HPE Networking Data Center Director (áður Juniper Apstra) í gagnaverum og HPE Mist (áður Juniper Mist AI) í staðar- og víðnetum. Við þökkum viðskiptavinum fyrir traustið og HPE fyrir öflugan búnað.

Arnþór Björn Reynisson

•

forstöðumaður

Sterkari samstarfsaðili til framtíðar 

Tækniumhverfi fyrirtækja breytist hratt. Auknar kröfur um öryggi, sjálfvirknivæðingu, gagnavinnslu og nýtingu gervigreindar kalla á öfluga og áreiðanlega innviði. Gold Partner staðan í netkerfum styrkir enn frekar getu Origo til að styðja íslensk fyrirtæki við að byggja upp öruggan og framtíðarhæfan tæknigrunn. 

Gervigreind gegnir einnig mikilvægu hlutverki í netrekstrinum sjálfum. Lausnir á borð við Mist AI frá HPE nýta gervigreind til að greina netgögn, finna orsakir vandamála ásamt því að leggja til og jafnvel framkvæma úrbætur. Þannig getur Mist AI auðveldað bilanaleit og hjálpað til við að bæta upplifun notenda. 

Við erum stolt af þessum áfanga og þökkum viðskiptavinum okkar fyrir traustið. Viðurkenningin er afrakstur öflugs samstarfs, metnaðarfulls starfsfólks og stöðugrar áherslu á að byggja upp þekkingu á tæknilausnum sem skilar raunverulegu virði fyrir viðskiptavini.

Fá ráðgjöf

Viltu vita meira um netþjónustu Origo?

Deila frétt