17/11/2026
Origo kemur að umfangsmikilli endurnýjun stafrænna innviða Veðurstofu Íslands
Umfangsmikil tæknileg nútímavæðing sem birtist meðal annars í nýjum vef

Þegar landsmenn leita upplýsinga um veður, viðvaranir eða náttúruvá er vedur.is ein mikilvægasta upplýsingaveita landsins. Í dag opnaði ný og endurbætt útgáfa vefsins sem þróuð hefur verið í samstarfi Veðurstofu Íslands, Origo og Metall Design Studio. Verkefnið felur í sér bæði nýtt notendaviðmót og umfangsmikla tæknilega endurnýjun sem styrkir miðlun mikilvægra upplýsinga til almennings um ókomin ár.
Mun meira en nýtt útlit
Þótt notendur sjái fyrst og fremst nýtt viðmót og einfaldara aðgengi að upplýsingum felur verkefnið í sér umfangsmikla endurnýjun á tæknilegum innviðum Veðurstofunnar.
Verkefnið náði meðal annars til uppbyggingar og nútímavæðingar nýs bakendakerfis, gagnaflutninga, endurskoðunar á öryggis- og rekstrarumhverfi ásamt þróun nýrrar kortalausnar sem gerir notendum kleift að nálgast upplýsingar með skýrari og gagnvirkari hætti.
Samhliða var unnið markvisst að því að draga úr tækniskuld sem hafði byggst upp yfir langan tíma og skapa tæknilegan grunn sem styður áframhaldandi þróun þjónustu Veðurstofunnar á næstu árum.
Fyrir marga lítur þetta út eins og nýr vefur, en að baki honum liggur umfangsmikil endurnýjun á stafrænum innviðum Veðurstofunnar. Verkefnið náði yfir allt frá bakendakerfum, samþættingum og gagnaflutningum yfir í öryggi, kortalausnir og uppbyggingu tæknigrunns fyrir framtíðina. Þegar um er að ræða þjónustu sem þjóðin treystir á þegar mest á reynir skiptir ekki aðeins máli hvað notendur sjá á skjánum heldur einnig að undirliggjandi kerfi séu örugg, áreiðanleg og tilbúin fyrir áframhaldandi þróun.
Alexandra Cruz Buenano
•
forstöðumaður Digital Labs hjá Origo
Endurnýjun mikilvægra stafrænna innviða sem byggðir eru fyrir miklar álagsaðstæður
Vedur.is er ekki hefðbundinn vefur. Hann er hluti af mikilvægum stafrænum innviðum Íslands þar sem almenningur, fyrirtæki, sveitarfélög, viðbragðsaðilar og stjórnvöld sækja upplýsingar um veður, náttúruvá og aðrar aðstæður sem geta haft áhrif á öryggi og rekstur samfélagsins.
Þess vegna var lögð rík áhersla á rekstraröryggi, skalanleika og afköst lausnarinnar. Nýja umhverfið er hannað til að standast verulega aukið álag þegar veðurviðvaranir, jarðhræringar eða aðrir váviðburðir leiða til mikillar umferðar á vefinn.
Gerðar eru ríkar kröfur um rekstraröryggi og afkastagetu þar sem vefurinn þarf að geta tekið við miklum fjölda heimsókna á skömmum tíma, sérstaklega þegar váviðburðir eða náttúruhamfarir eiga sér stað.
Origo sá um þróun og uppbyggingu tæknilausnarinnar í nánu samstarfi við sérfræðinga Veðurstofunnar, með áherslu á öryggi, sveigjanleika og framtíðarþróun. Lausnin skapar jafnframt sterkan grunn fyrir áframhaldandi stafræna umbreytingu stofnunarinnar á næstu árum.
Veðurstofa Íslands gegnir mikilvægu hlutverki í að miðla upplýsingum sem varða öryggi almennings, innviða og daglegt líf um land allt. Með nýjum vef viljum við gera fólki auðveldara að finna þær upplýsingar sem það þarf þegar á reynir.
Hildigunnur H. H. Thorsteinsson
•
forstjóri Veðurstofu Íslands
Hönnun mótuð að upplifun notenda
Markmið verkefnisins var að bæta aðgengi að veðurupplýsingum, viðvörunum og gögnum um náttúruvá með skýrari framsetningu, betri notendaupplifun og nútímalegum tæknilegum innviðum. Vefurinn þjónar daglega þúsundum notenda og gegnir mikilvægu hlutverki þegar kemur að miðlun upplýsinga sem varða öryggi almennings, innviða og samfélagsins alls.
Við þróun nýja vefsins var lögð rík áhersla á þarfir notenda. Sérstök áhersla var lögð á að gera viðvaranir sýnilegri, einfalda aðgengi að lykilupplýsingum og bæta notkun í farsímum.
Í þessum fyrsta áfanga hafa þær síður sem njóta mestrar umferðar verið endurnýjaðar, þar á meðal veðurspár, viðvaranir, jarðskjálftagögn, tilkynningar frá sólarhringsvakt og fréttir. Jafnframt hefur veðurspám fjölgað fyrir staði um land allt og kortalausnir verið endurbættar til að auðvelda notendum að nálgast upplýsingar fyrir sitt nærsvæði.
Verkefni sem heldur áfram
Opnun vefsins í dag markar mikilvægan áfanga í stærra umbreytingarverkefni. Á næstu misserum verður áfram unnið að þróun nýrra vefsvæða fyrir meðal annars sjóveður, flugveður, vatnafar, rannsóknir og loftslagsþjónustu.
Nýi vedur.is er gott dæmi um hvernig öflug stafræn þjónusta, byggð á traustum tæknigrunni og notendamiðaðri hönnun, getur aukið aðgengi að mikilvægum upplýsingum fyrir samfélagið allt.
Deila frétt