10/06/2025
Origo og ArmorText: samstarf um öruggar samskiptalausnir fyrir íslenskan markað
Origo og ArmorText hafa nýlega hafið samstarf en ArmorText sérhæfir sig í því að bjóða upp á samskiptavettvang sem tryggir örugg samskipti, jafnvel þegar landið er aftengt alþjóðlegu neti.

Ný lausn fyrir nýja tíma – ArmorText kemur til Íslands
Í heimi þar sem ríkir aukin óvissa, hvort sem um ræðir netárásir, náttúruhamfarir eða alþjóðleg átök – eru örugg samskipti mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Ein fyrsta áskorun hvers áfalls eru yfirleitt samskipti, og þegar Internetið sjálft bregst, verður ljóst hversu nauðsynlegt er að hafa traust, sjálfstætt og sveigjanlegt samskiptanet sem stenst álag.
Þess vegna hefur Origo, í samstarfi við ArmorText, tekið þátt í því að koma „ArmorText Sovereign Edition“ til Íslands – sérsniðinni lausn sem tryggir örugg samskipti, jafnvel þegar landið er aftengt alþjóðlegu neti. ArmorText sérhæfir sig í að bjóða upp á öruggan samskiptavettvang fyrir fyrirtæki.

Hvað þýðir að lausnin sé hýst á Íslandi og hvers vegna skiptir það máli?
ArmorText Sovereign Edition er hýst innanlands. Samskiptalausnin er hönnuð til að virka á innlendum innviðum, í íslenskum rekstri, með allri þeirri öryggis- og rekstrarvirkni sem er í alþjóðlegri útgáfu ArmorText. Hún er óháð almennu netsambandi og heldur áfram að virka jafnvel þótt tenging við alþjóðlega netið rofni tímabundið.
Með þessu samstarfi styrkir Origo vöruframboð sem styður við öruggan og samfelldan rekstur íslenskra fyrirtækja og stofnana. Þetta á sérstaklega við á sviðum sem snerta:
Innri samskipti stjórnenda og öryggisteyma
Viðbúnað og viðbrögð við atvikum
Samvinnu milli fyrirtækja í viðkvæmum virðiskeðjum
Sameiginlega vörn og upplýsingar um ógnir
Samstarf sem byggir á trausti og framtíðarsýn
ArmorText valdi Ísland sem fyrsta markað fyrir „Sovereign Edition“ eftir samráð við íslenskan fjármálageira sem kallaði eftir lausn sem tryggir samræmd og örugg samskipti – jafnvel við langvarandi sambandsleysi við alþjóðlegt net.

Alhliða öryggi og stjórnun – tilbúið fyrir regluverk framtíðarinnar
ArmorText uppfyllir ströngustu kröfur um dulkóðun, aðgangsstýringu og gagnavistun – og uppfyllir þannig bæði NIS2-tilskipunina og DORA-reglugerðina sem setja ný viðmið fyrir viðbúnað og rekstraröryggi.
Helstu eiginleikar Sovereign Edition:
Enda-til-enda dulkóðuð skilaboð, símtöl, skjádeiling og skráarsamskipti
Sjálfstæð rekstrargeta – óháð millilanda samböndum
Miðlæg öryggis- og notendastjórnun
Sveigjanleg samþætting við öryggiskerfi (t.d. SIEM)
Neyðarrekstrargeta við áföll eða aukið álag
Hvað þýðir þetta fyrir íslenskt samfélag?
Samstarf Origo og ArmorText tryggir að íslensk fyrirtæki og stofnanir geti treyst á örugg og sveigjanleg samskipti í óvissum aðstæðum, án þess að fórna virkni eða notendaupplifun. Lausnin styrkir þannig þjóðaröryggi og viðbúnað og er í takt við alþjóðlega þróun í stafrænum rekstri.
Deila frétt