19/06/2025
Origo og Keystrike hefja samstarf um netöryggi
Origo og Keystrike hafa nýlega hafið samstarf en Keystrike sérhæfir sig í vernd lykilinnviða fyrirtækja og stofnana. Keystrike hefur þróað Sanctum Guard, einkaleyfisvarða lausn sem greinir netárásir í rauntíma.

Origo og netöryggisfyrirtækið Keystrike hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að Origo verður formlegur endursöluaðili netöryggislausna Keystrike og mun jafnframt nýta vörur fyrirtækisins til að efla eigið öryggi. Keystrike leggur sérstaka áherslu á vernd lykilinnviða gegn netárásum, þar á meðal fjármálakerfisins, fjarskiptakerfa og orkukerfa, og styrkir samstarfið þannig netvarnir á víðum grundvelli innanlands.
Netárásir verða sífellt flóknari og alvarlegri, og við hjá Origo leggjum ríka áherslu á að vera skrefi á undan árásaraðilum. Nálgun Keystrike við netöryggi er byltingarkennd, að stöðva árásir eftir innbrot en áður en tjón verður, og við erum sannfærð um að lausnin muni auka bæði netöryggi Origo og viðskiptavina okkar
Helgi Björgvinsson
•
Sölustjóri Origo
„Við erum stolt af því að leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki á borð við Origo velji vörur Keystrike, ekki aðeins til að efla öryggi viðskiptavina sinna heldur einnig til að efla öryggi eigin innviða. Samstarfið er afar mikilvægt skref í uppbyggingu Keystrike á okkar heimamarkaði. Við erum rétt að byrja - og hlökkum til samstarfsins við Origo,“ segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Keystrike.

Sérstaða Keystrike á netöryggismarkaði
Keystrike sérhæfir sig í vernd lykilinnviða fyrirtækja, stofnana og samfélagsins. Fyrirtækið hefur þróað Sanctum Guard, einkaleyfisvarða lausn sem greinir netárásir í rauntíma, kemur í veg fyrir háþróaðar viðvarandi netárásir og verndar lykilinnviði án þess að hægja á tölvum eða trufla eðlilega verkferla. Þá styður Sanctum Guard við hlítingu helstu netöryggisreglugerða Evrópu, þar á meðal NIS2 og DORA.
Deila frétt