06/10/2022

Origo selur eignarhlut sinn í Tempo

Origo hefur náð samkomulagi um skuldbindandi kaupsamning á milli Origo hf. (Origo) og Diversis Tempo Holdings II, LLC, félags á vegum bandaríska tæknifjárfestingarsjóðsins Diversis Capital (Diversis) um sölu Origo á öllum eignarhlut félagsins í Tempo Ultimate Parent, LLC (Tempo) til Diversis. Um er að ræða tæplega 40% eignarhlut í Tempo.

Virði Tempo í viðskiptunum (e. Enterprise Value) er um 600 milljónir USD.  Samkvæmt kaupsamningi fær Origo greiddar í reiðufé 195 milljónir USD fyrir eignarhlut sinn. Áætlaður söluhagnaður Origo er um 156 milljónir USD að teknu tilliti til bókfærðs virðis og kostnaðar vegna viðskiptanna.

Ljóst er að salan á Tempo mun hafa umtalsverð jákvæð áhrif á efnahagsreikning Origo þar sem lausafjárstaða styrkist og geta til innri og ytri vaxtar verður umtalsverð. Stjórn og framkvæmdastjórn Origo munu vinna að tillögu um ráðstöfun söluandvirðisins sem verður kynnt hluthöfum í framhaldinu.

Hjalti Þórarinsson, stjórnarformaður Origo, segir að nú sé komið að ánægjulegum tímamótum hjá Origo og Tempo eftir um 15 ára vegferð. „Stórt skref var tekið í nóvember 2018 þegar Origo seldi meirihluta í félaginu til Diversis Capital í þeim tilgangi að fá meðfjárfesta með alþjóðlega reynslu til að hraða vexti félagsins og auka virði fyrir hluthafa Origo.“

Hjalti Þórarinsson, stjórnarformaður OrigoHjalti Þórarinsson, stjórnarformaður Origo

„Sú vegferð sem Origo lagði upp með þá hefur að fullu gengið eftir og rúmlega það, og hefur virði Tempo áttfaldast frá því haustið 2018. Arðsemi Origo af þessum viðskiptum er frábær og hluthafar Origo innleysa hér mikil verðmæti,“ bætir Hjalti við.

„Origo hefur í áraraðir lagt mikla áherslu á nýsköpun og hugbúnaðarþróun sem hluta af menningu og rekstri félagsins. Tempo byrjaði sem hugmynd hjá starfsmönnum Origo árið 2008 og hefur vaxið og dafnað frá þeim tíma,“ segir Jón Björnsson, forstjóri Origo og bætir við:

„Sala á meirihluta í félaginu til Diversis Capital árið 2018 reyndist mjög góð ákvörðun hjá stjórnendum Origo. Árangur Diversis með Tempo hefur farið fram úr væntingum. Tempo stendur nú á ákveðnum krossgötum í sinni vegferð eftir kaup á tveimur nýjum félögum sem meira en tvöfaldar stærð félagsins. Vegferð Tempo sýnir skýrt hvað frábært starfsfólk, íslenskt hugvit, stuðningur eigenda og stjórnvalda getur búið til mikil verðmæti í hugbúnaðargeiranum. Origo heldur áfram að þróa lausnir sem breyta leiknum líkt og Tempo hefur gert og vonum við að fleiri hugbúnaðarvörur geti átt jafn farsælan feril og Tempo.“

Jón Björnsson, forstjóri OrigoJón Björnsson, forstjóri Origo

„Við óskum starfsfólki Tempo og Diversis alls hins besta og þökkum fyrir samfylgdina síðustu ár og vonandi mun félagið halda áfram að vaxa og dafna líkt og áður,“ segir Jón að lokum.

Ráðgjafar Origo í viðskiptunum voru LOGOS, AGC Partners og McGuireWoods. Nánar verður gerð grein fyrir viðskiptunum á uppgjörsfundi Origo mánudaginn 31. október næstkomandi.

Deila frétt