12/02/2026

Nátturuundur á Origo básnum á UTmessunni

Á UTmessunni í ár kynnti Origo gagnvirka upplifun þar sem almyrkvinn var nýttur sem myndlíking fyrir stafræna vegferð fyrirtækja. Með fræðslu, leik og samtölum var sjónum beint að samstillingu sem drifkrafti framfara.

Það var mikið um að vera á bás Origo á nýafstaðinni UTmessu þar sem gestum var boðið að skoða stafræna vegferð í alveg nýju ljósi. Við völdum að nálgast stafræna umbreytingu út frá nýju samhengi að þessu sinni. Með almyrkvann að leiðarljósi sýndum við hvernig ólíkir þættir tækninnar þurfa að falla fullkomlega í takt til að skapa þá heildarmynd sem nútíma rekstur krefst. Sýningarbásinn var hannaður í samstarfi við Gagarín og Sævar Helga Bragason. Gagarín sáu um hönnun og útfærslu gagnvirks leiks sem gestir gátu tekið þátt í.

Hringrás framfara

Stafrænn árangur snýst sjaldan um einn einangraðan atburð. Á básnum nýttum við almyrkvann sem myndmál til að sýna hvernig:

  • Rekstur og öryggi mynda grunninn

  • Breytingar og vöxtur skapa framþróun

  • Samstilling þessara þátta leiðir af sér raunverulegan árangur

Líkt og í almyrkva þurfa allir hlutir að raðast upp til að skapa þann skýrleika sem þarf til að ná forskoti á framtíðina.

Stjörnu Sævar og gagnvirkur leikur

Á laugardeginum náði stemningin hámarki þegar Sævar Helgi Bragason (Stjörnu Sævar) mætti á Origo básinn. Hann fræddi gesti um þann einstaka náttúruatburð sem fram undan er og hvernig vísindi og tækni hjálpa okkur að skilja alheiminn.

Gestir gátu einnig prófað gagnvirkan leik þar sem þeir gátu „búið til“ sinn eigin almyrkva. Það var virkilega gaman að sjá hve margir nýttu tækifærið til að læra meira um þetta sjaldgæfa náttúrufyrirbrigði í gegnum stafræna upplifun.

Við viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna og fyrir þau frábæru samtöl sem við hjá Origo áttum á UTmessunni í ár.

Deila frétt