13/11/2026

Víðtæk röskun á skýjaþjónustu Microsoft

Notendur um allan heim eiga í erfiðleikum með að tengjast skýjaþjónustu Microsoft í dag. Truflanirnar eru víðtækar og hafa áhrif á skýjalausnir fyrirtækisins.

Helst hefur röskunin áhrif á Outlook, Teams og SharePoint, auk annarra þjónusta. Microsoft nefnir einnig Outlook.com, OneDrive, OneNote, Microsoft To Do og Microsoft 365 í vafra. Notendur gætu líka orðið varir við vandamál í öðrum Microsoft 365 þjónustum.

Samkvæmt Microsoft geta notendur átt erfitt með að opna þjónusturnar eða framkvæma ákveðnar aðgerðir í þeim. Microsoft vinnur að því á nokkrum vígstöðvum að finna upptök vandans og koma þeim hluta kerfisins sem varð fyrir áhrifum aftur í lag. Engin tímaáætlun um lausn liggur fyrir.

Hægt er að fylgjast með stöðunni á status.cloud.microsoft

Deila frétt