27/05/2026

Að umbreyta gögnum í verðmæti

Fabian Selbmann, teymisstjóri Data & AI hjá Origo, hjálpar fyrirtækjum að umbreyta gögnum í raunverulegt virði. Með því að tengja saman fólk, tækni og innsýn styður hann við betri ákvarðanatöku og mælanlegan árangur.

Fabian Selbmann, teymisstjóri Data & AI hjá Origo, hefur starfað hjá fyrirtækinu í tæp níu ár. Á þeim tíma hefur hann fetað fjölbreytta leið innan húss, allt frá sérhæfðri ráðgjöf í SAP-bankalausnum yfir í víðtæka verkefnastjórnun. Í dag leiðir hann eitt af lykilteymum Origo á sviði gagna og gervigreindar. 

Hlutverk hans snýst um að hjálpa fyrirtækjum að virkja gögn sín á markvissan hátt. Áherslan er ekki eingöngu á greiningu eftir á, heldur á að skapa beinan rekstrarárangur með nýjustu tækni. 

„Í starfi mínu einblíni ég á að hjálpa bæði viðskiptavinum og innri teymum að umbreyta hráum gögnum í verðmæti. Engir tveir dagar eru eins, og það er einmitt það sem gerir starfið skemmtilegt“

Fabian Selbmann

Teymisstjóri Data & AI hjá Origo

Tæknin leysir ýmis vandamál

Áhugi Fabians á tækni hefur alltaf verið drifinn af því hvernig tæknin getur leyst raunveruleg vandamál. Hann hóf feril sinn í ráðgjöf þar sem gaf honum mikla yfirsýn í þarfir fyrirtækja og hvernig réttar tæknilausnir geta haft afgerandi áhrif á framleiðni. 

Fyrir honum var skrefið yfir í Data & AI eðlileg þróun — brú á milli tæknilegra möguleika og hagnýtra niðurstaðna. 

„Ég hef alltaf haft áhuga á því hvernig tækni getur leyst raunveruleg vandamál og skapað virði. Í gagnaheiminum næ ég að tengja saman nýsköpun og mælanleg áhrif á rekstur, sem er minn helsti drifkraftur.“

Fabian Selbmann

Teymisstjóri Data & AI hjá Origo

Brúarsmiður milli fólks og gagna

Það sem Fabian telur mikilvægast í sínu starfi er að brúa bilið milli fólks, tækni og gagna. Hann vinnur náið með viðskiptavinum að því að taka flóknar hugmyndir og móta þær í lausnir sem skila sýnilegum árangri. 

Samvinna er rauði þráðurinn í öllu hans starfi: "Það er ótrúlega gefandi að sjá hvernig fólk úr ólíkum áttum sameinar krafta sína til að skapa lausn sem enginn hefði getað smíðað einn," segir hann.

Uppbygging öflugs teymis

Eitt af því sem Fabian er stoltastur af er vöxtur Data & AI teymisins hjá Origo. Það sem byrjaði sem lítill hópur hefur þróast í öflugt sérfræðingateymi sem styður við bakið á fjölmörgum fyrirtækjum. 

Helstu áherslur teymisins eru:

  • Gæði gagna: Bæta söfnun og tryggja áreiðanleika. 

  • Yfirsýn: Tryggja betri meðhöndlun og gagnsæi upplýsinga. 

  • Samþætting: Tengja gögn þvert á ólík kerfi til að eyða upplýsingasílóum. 

„Við höfum lagt grunninn að því að fyrirtæki geti nýtt gögnin sín til fulls — hvort sem það er fyrir ítarlega greiningu, gervigreind eða sjálfvirkni í rekstri.“

Fabian Selbmann

Teymisstjóri Data & AI hjá Origo

Á fjöllum finnur hann jafnvægið

Utan vinnu leitar Fabian í aðrar og líkamlegri áskoranir. Hann er ástríðufullur utanvega hlaupari sem sækir orku í íslenska náttúru. 

Hlaupin eru hans leið til að hreinsa hugann eftir krefjandi vinnuvikur. Hann nálgast þau ekki sem keppni við aðra, heldur sem persónulega vegferð til að kanna eigin mörk. Lengsta hlaupið hingað til er 100 kílómetrar í stórbrotnu og krefjandi landslagi. 

Gögnin fylgja með í frítímann

Jafnvel þegar Fabian er úti á fjöllum spilar gagnahugsunin hlutverk. Hann notar tól eins og Komoot, AllTrails og Garmin til að skipuleggja leiðir og fylgjast með framförum. 

"Ætli það megi ekki segja að ég hafi gaman af skipulagi og gögnum, jafnvel þegar ég er að slaka á," segir hann léttur í bragði.

Að lokum

Saga Fabians endurspeglar kjarnann í starfsemi Origo: að nota tækni til að efla fólk og fyrirtæki. 

Að lokum snýst þetta ekki bara um tæknina sjálfa — heldur hvernig við nýtum hana til að taka skynsamlegri ákvarðanir og ná betri árangri.

Fabian Selbmann

Teymisstjóri Data & AI hjá Origo

Deila frétt