08/05/2026

Origo hlýtur Sjálfbærniásinn 2026

Origo hefur hlotið Sjálfbærniásinn 2026. Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á vegferð Origo í að nýta tækni á ábyrgan hátt, tryggja örugg innviði og skapa jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfið.

Origo hefur hlotið Sjálfbærniásinn 2026 og mælist nú efst upplýsingatæknifyrirtækja í mati íslenskra neytenda á samfélagslegri ábyrgð. Viðurkenningin staðfestir skýra áherslu fyrirtækisins á sjálfbærni, ábyrga stjórnunarhætti og tæknilausnir sem skapa jákvæð áhrif fyrir samfélagið.

Við hjá Origo erum gríðarlega stolt af því að hafa hlotið þessa viðurkenningu en Sjálfbærniásinn er veittur af Prósent, Langbrók og Stjórnvísi og byggir á víðtækri könnun á upplifun almennings á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja.

Að vera valin fremst í okkar geira er mikilvæg staðfesting á því trausti sem við höfum byggt upp. Fyrir okkur snýst þetta ekki aðeins um rekstur og þjónustu, heldur um að nýta tæknina á jákvæðan og ábyrgan hátt.

Sjálfbærni sem hluti af kjarnastarfsemi

Hjá Origo er sjálfbærni samofin daglegum rekstri og þeirri ábyrgð sem fylgir umsjón mikilvægra stafrænna innviða. Við leggjum ríka áherslu á:

  • Umhverfið: Lágmörkum umhverfisáhrif með ábyrgri nýtingu auðlinda og snjöllum lausnum.

  • Fólkið: Eflum jafnrétti, fjölbreytileika og vellíðan starfsfólks.

  • Stjórnarhætti: Byggjum á gagnsæi, ábyrgð og heilindum í stjórnarháttum.

Tæknin sem drifkraftur jákvæðra áhrifa

Sjálfbærnivegferð okkar endurspeglast í þeim lausnum sem við þróum og rekum fyrir íslenskt samfélag. Með betri nýtingu gagna og auknu öryggi styðjum við viðskiptavini okkar í að taka betri ákvarðanir og að nýta auðlindir á ábyrgari hátt. Sjálfbærniásinn er okkur hvatning til að halda áfram að gera enn betur fyrir framtíðina.

Deila frétt