26/06/2025
Skýrari hlutverk Origo með flutningi innviðalausna til Ofar
Frá og með 1. júlí 2025 mun Ofar ehf. taka við Innviðaeiningunni sem hefur sinnt sölu og þjónustu á vél- og netbúnaði frá birgjum eins og Lenovo, IBM, Nvidia o.fl. Origo einbeitir sér áfram að því að veita framúrskarandi þjónustu í hugbúnaði, rekstrarþjónustu ...

Breytingar á skipulagi: Starfsemi Innviða flyst frá Origo ehf.
Fyrirtækin Origo og Ofar, bæði í eigu Skyggnis, skerpa nú hlutverk sín enn frekar. Frá og með 1. júlí 2025 mun starfsemi sem snýr að sölu og þjónustu á netþjónum, gagnageymslum og netbúnaði flytjast til Ofar ehf.
Skýrari hlutverk og aðgreining félaganna Origo og Ofar
Origo heldur áfram að skýra sína stöðu sem leiðandi þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni með sérhæfingu á sviði hugbúnaðar, rekstrarþjónustu og öruggrar hýsingar. Lykilhæfni Origo felst í sterkri rekstrarþjónustu og mun halda áfram að bjóða öruggan og áreiðanlegan netrekstur, með búnaði frá þessum birgjum.
Þessi breyting gefur okkur hjá Origo aukið svigrúm til að einbeita okkur að því að veita framúrskarandi þjónustu, vandaða ráðgjöf og þróa hugbúnaðarlausnir og örugg upplýsingatækniumhverfi sem hjálpa viðskiptavinum okkar að ná forskoti. Innviðir eru á réttum stað hjá Ofar sem sérfræðingar í sölu og þjónustu á vélbúnaði fyrir almennan fyrirtækjamarkað.
Ari Daníelsson
•
forstjóri Origo
"Á sama tíma sjáum við mikil tækifæri í vélbúnaði sem tengist orkulausnum og gagnaverum. Við erum að taka skref til að tryggja þessum einingum þá athygli sem þær verðskulda – á tímum hraðrar þróunar gervigreindar og orkuskipta."
Innviðalausnir – nýtt svið hjá Ofar
Með flutningnum verður sala á vélbúnaði sameinuð undir einum hatti hjá Ofar. Nýtt svið Innviðalausna mun byggja á sterkum grunni; átta manna teymi með áratugareynslu og sérþekkingu í ráðgjöf, sölu, uppsetningu og þjónustu við meðal annars netþjóna, gagnageymslur, netbúnað og spóluafritun. Helstu samstarfsaðilar eru Lenovo, IBM, Juniper, Fortinet, Nutanix, Cisco og Nvidia.
Við í Ofar bjóðum teymi Innviða hjartanlega velkomið. Við hlökkum til að læra af þeirra reynslu og þróa saman öfluga heild í þjónustu við viðskiptavini okkar. Við hlökkum til að mynda tengsl við nýja lykilbirgja og sameina Lenovo lausnir á einum stað hjá Ofar.
Jón Mikael Jónasson
•
Framkvæmdastjóri Ofar
Hvað þýðir þetta fyrir þig sem viðskiptavin?
Frá 1. júlí tekur Ofar við allri ábyrgðar- og viðgerðarþjónustu sem tengist vélbúnaði frá Lenovo, IBM, Juniper, Fortinet, Nutanix, Cisco og Nvidia.
Engin truflun verður á núverandi viðskiptasamböndum. Sama starfsfólk mun áfram sinna sölu og þjónustu á þessum vörum, nú undir merkjum Ofar.
Skýrara vöruframboð: Vörur og lausnir sem áður voru í boði hjá Innviðum verða áfram fáanlegar, nú með auknum sýnileika og aðgengi í netverslun Ofar.
Einn tengiliður fyrir vélbúnað: Með því að sameina alla vélbúnaðarsölu og þjónustu hjá Ofar verður auðveldara fyrir þig að nálgast allar tengdar lausnir og þjónustu á einum stað.
Lenovo lausnir á einum stað: Öll sala og þjónusta á Lenovo lausnum fer nú fram hjá Ofar, sem eykur samræmi í samskiptum og stuðningi við þig sem viðskiptavin.
Á vef Ofar er hægt að nálgast upplýsingar um vörur, heimsækja mínar síður sem sýna stöðu reikninga og hreyfingalista.
Deila frétt