31/05/2022

Synd­is hlýt­ur Upp­lýs­ing­a­tækn­i­verð­laun Ský 2022

Öryggisfyrirtækið Syndis hlaut UT-verðlaun Ský 2022 sem voru afhent við hátíðlega athöfn á ráðstefnu- og sýningardegi UT-messunnar. 

„Fá fyrirtæki á Íslandi hafa verið jafn áberandi á sviði öryggismála líkt og Syndis. Segja má að Syndis sé orðið að ímynd upplýsingaöryggis á Íslandi. Starfsmenn Syndis hafa fundið stóra öryggisgalla í vörum og þjónustu frá stórum og þekktum framleiðendum víðsvegar um heim," segir í rökstuðningi valnefndar um upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands 2022.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Valdimar Óskarsson, forstjóri Syndis og Theódór R. Gíslason, stofnandi og tæknistjóri SyndisGuðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Valdimar Óskarsson, forstjóri Syndis og Theódór R. Gíslason, stofnandi og tæknistjóri Syndis

Syndis hlaut heiðursverðlaun Ský á UT-messunni 2022 fyrir framúrskarandi framlag á sviði upplýsingatækni. Syndis var stofnað árið 2011 þegar þrír vinir og stofnendur fyrirtækisins, Theódór Ragnar Gíslason, Ýmir Vigfússon og Rich Smith, ákváðu að nýta þekkingu sína um árásarhlið öryggis til þess að auka öryggisvitund á Íslandi. Árið 2021 keypti Origo fyrirtækið Syndis en þá sameinuðust öryggislausnir Origo og Syndis undir vörumerki Syndis. Með því var búin til sterk eining sem býður heildstæða stafræna öryggisþjónustu, ráðgjöf og þróanir á vörnum gegn netárásum og gagna- og auðkennisþjófnaði.

Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, ásamt starfsfólki Syndis við verðlaunaafhendingunaForseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, ásamt starfsfólki Syndis við verðlaunaafhendinguna

Valdimar Óskarsson, forstjóri Syndis sagði: „Hjá Syndis starfa sérfræðingar sem þekktir eru í heiminum fyrir störf sín í upplýsingaöryggi og vinna um allan heim að öryggismálum og hafa haldið fjölda erinda á alþjóðlegum ráðstefnum. Syndis hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á rannsóknir og þróun á sviði upplýsingaöryggis, starfandi innan Syndis er hugbúnaðardeild sem vinnur að því að þróa lausn sem metur hversu freistandi fyrirtæki eru fyrir hakkara, sem geta jú verið út um allan heim. Reynsla öryggissérfræðinga innan Syndis nýtist vel við þessa vinnu.“

Syndis hefur aðstoðað mörg fyrirtæki sem hafa orðið fyrir barðinu á tölvuþrjótum en mikilvægasti hluti starfsemi Syndis er hjálpa fyrirtækjum að verjast árásum og þar með lágmarka það tjón sem fyrirtæki geta orðið fyrir. Syndis hefur alltaf reynt að bregðast fljótt við þegar að nýjar ógnir steðja að, sem dæmi má nefna að Syndis tók þátt í viðbrögðum við “Log4j” veikleikanum sem hafði mikil áhrif í tölvuheiminum síðasta vetur og aðstoðaði fyrirtæki hvernig þau ættu að bregðast við þessari ógn.

Deila frétt