Microsoft logo

Viva Engage

Viva Engage hjálpar fyrirtækjum að skapa opnari og skilvirkari samskipti með því að tengja starfsfólk þvert á deildir. Hvort sem það er til að deila þekkingu eða skapa samfélög þá veitir Viva Engage vettvang sem stuðlar að aukinni þátttöku starfsmanna og betra upplýsingaflæði.

Ungur maður í rauðri gallaskyrtu heldur á kaffibolla

Viva Engage

Öflugur samskiptavettvangur

Viva Engage er öflugur samskiptavettvangur frá Microsoft sem býður upp á fjölbreytta samskiptamöguleika fyrir vinnustaði. Í Viva Engage getur starfsfólk auðveldlega deilt sín á milli fjölbreyttu efni og miðlað hugmyndum.

Viva Engage sameinar samskipti fyrirtækja á einum vettvangi, sem ýtir undir samvinnu þvert á deildir. Viva Engage styrkir fyrirtækjamenningu, einfaldar upplýsingaflæði og hvetur til aukinnar þátttöku starfsfólks.

myndskreyting

Ávinningur

Af hverju Viva Engage?

  • Notendavæn upplifun 
  • Samþætting við M365-kerfi 
  • Auðveldar samstarf milli deilda 
  • Fjölbreyttir samskiptaeiginleikar 
  • Einfalt í uppsetningu 
  • Grunnvirkni innifalin í flestum Microsoft-leyfum 

Við getum hjálpað þér að komast í Viva Engage

Áður en farið er af stað í Viva Engage er mikilvægt að greina þarfir og væntingar. Við veitum tæknilega ráðgjöf og stuðning við undirbúning og innleiðingu á Viva Engage.

Gerum úttekt á þörfum fyrirtækisins

Veitum tæknilega ráðgjöf

Hjálpum við allt sem snýr að innleiðingu Viva Engage - aðgangsstýringar, stillingar og samþættingar

Veitum ráðgjöf til að skapa virkt samfélag á Viva Engage

Myndskreyting
Myndskreyting

Fá ráðgjöf

Viltu fá að vita meira um Viva Engage? Við getum hjálpað þér