Ávinningur
- Nánari tengsl við viðskiptavini
- Auknar tekjur og betri þjónusta
- Samkeppnisforskot
- Nútímavæðing
- Gögn um notendahegðun
- Aukin vörumerkjavitund
Notendaupplifun í fyrirrúmi
Fyrsta upplifun skiptir máli
Við hönnun snjallforrita er notendaupplifun í fyrirrúmi. Við byrjum á að skilja hverjir notendur þínir eru, hvað þeir þurfa og hvernig þeir hugsa. Hvert smáatriði er ígrundað til að skapa sem besta upplifun þar sem þú hefur aðeins nokkrar sekúndur til að sannfæra notanda um að halda áfram að nota forritið. Með prófaðri aðferðafræði og djúpum skilning á notendaþörfum þróum við forrit sem fólk vill nota aftur og aftur.
Sérfræðiþekking
Þú ert hluti af ferlinu
Við vinnum með þér að þróunarferlinu frá byrjun til enda. Reglulegar uppfærslur og opin samskipti tryggja að lokaafurðin verði nákvæmlega það sem þú þarft og meira til. Reynsla okkar af flóknum tæknilausnum og djúp þekking á íslensku viðskiptaumhverfi gerir okkur að kjörnum samstarfsaðila.
Við þróum fyrir bæði iOS og Android svo að snjallforritið þitt sé aðgengilegt óháð hvaða síma notendur nota. Auk þess getum við tengt snjallforritið þitt við núverandi viðskiptakerfi líkt og DK, Business Central og SAP.
