1. MAÍ 2021

Gjaldskrárbreytingar

Í kjölfar reglulegrar endurskoðunar á verðskrá vegna vinnu- og þjónustusamninga mun Origo hækka einstaka þjónustuþætti. Þjónustuvörurnar hækka á bilinu 1% til 7% og tekur sú hækkun gildi frá og með 1. júní. Tímagjald starfsmanna mun hækka um 2,5% frá og með 20. maí 2021.

Þessi breyting nær ekki til samninga sem eru vísitölutengdir og allir samningsbundnir afslættir haldast óbreyttir.

Með hagræðingu hefur okkur tekist að stilla breytingum í hóf og er kostnaðarauki Origo meiri en sem nemur þessari breytingu.